Stór stund fyrir keflvískan körfubolta rennur upp kl. 20.30 á lítilli eyju suður af ströndum Portúgal !
Þá er orðið útséð um þátttöku Fals í kvöld. Hann verður ekki með, kappinn sá, og reyndar er óvíst um framhaldið hjá honum, hnéið er orðið mikið skemmt, lausar beinflísar í hnéliðnum og fleira. Hann mun vætanlega fara í speglun við heimkomuna og síðan hvíla sig. Staðan verður svo tekin eftir jól með framhaldið. En þá verður Hjörtur vonandi farinn að kasta bolta að körfu. Falur sagðist finna verulega til í hnjánum og sársaukinn færi versnandi frekar en hitt. Ekki gott það. En nóg af meiðslum . . .kíkjum á sjálfan viðburð kvöldsins, leik Madeira og Keflavíkur í síðustu umferð B-riðils Vesturdeildar Bikarkeppni Evrópu.
Leikurinn hefst kl. 20.30 en skömmu síðar, kl. 21.00, hefst leikur Ovarense og Toulon, en úrslit úr þeim leik skipta okkur máli varðandi lokastöðu í riðlinum. Því ef við vinnum þá verðum við númer 1 ef Toulon vinnur, en númer 2 ef Ovarense vinnur. Ef við hins vegar töpum, þá snýst þetta við, við verðum númer 2 ef Ovarense vinnur, en númer 3 ef Toulon vinnur. En það skal ítrekað hér að þegar riðlakeppninni lýkur tekur við 8 liða útsláttarkeppni, þar sem vinna þarf tvo leiki til að komast áfram. Við þurfum að lenda í 1. eða 2. sæti til að fá fyrsta og, ef með þarf, þriðja leikinn á heimavelli.
Lið Madeira er orðið töluvert sterkara en þegar það mætti til Keflavíkur á dögunum. Sterkir leikmenn eru orðnir leikhæfir eftir meiðsli, skal þar fyrstan nefna stórskyttuna Chema Marcos og síðan Pedro Nuno, en þessir tveir eru, ásamt turnunum tveimur, Nate Johnston og Ken Leeks, aðalmennirnir í liðinu.
Við megum gera ráð fyrir að Madeira vilji læra af Ovarense og því muni þeir beita svipaðri taktík. Þeir munu treysta sér til að ráða við okkar menn undir körfunum og setja síðan ofurpressu á skytturnar, helst allan völlinn. Ovarense tókst nefnilega að loka á skytturnar, nema hvað Falur tók þrjár á stuttum tíma í 3ja leikhluta. Guðjón þjálfari sagði að aðstæður væru fínar og sagði að menn gerðu sér vel grein fyrir mikilvægi leiksins, þótt vissulega væri lýjandi að vera svona mikið á ferðalagi. Hann taldi að Keflavík ætti ágætan séns á sigri í kvöld.
Okkar menn vita núna hverju þeir mega búast við. Hörku, hörku og meiri hörku. Þeir verða að vera klárir og tilbúnir að leika með hjartanu frá fyrstu sekúndu. Gefa allt í leikinn, því hann er svakalega mikilvægur. Sverrir, Davíð og Arnar munu líklega leysa Fal af í kvöld, og þeir verða að passa sig á því að keyra upp hraðann eins og mögulegt er, en það hefur stundum skort hjá þeim þegar Falur hefur verið utan vallar. Því hraðinn vinnur með okkur, skotin verða frí og stóru strákarnir hinu megin verða þreyttir. En við munum aldrei vinna þá í slagsmálum undir körfunum, svo mikið er víst.
Jæja, spennan vex og Keflavík bíður eftir úrslitunum. Heimasíðan mun "lýsa leiknum beint" með aðstoð Birgis Más Bragasonar, fararstjóra, sem núna er staddur á Madeira í 25 stiga hita og sól . . . .