Fréttir

Körfubolti | 5. nóvember 2005

Stórfurðuleg ummæli finnska þjálfarans

Mörgum Keflvíkingum var heldur brugðið þegar þeir lásu ummæli finnska þjálfarans, Mika Turunen, eftir Evrópuleik Keflavíkur og Lappeenranta í Mogganum á föstudag. Hann lét sér ekki duga að flengja Keflvíkinga á körfuboltavellinum heldur hélt áfram og hraunaði yfir þjálfara Keflavíkur, KKÍ og forráðamenn Keflavíkur. Karlgreyið kvartaði svo mikið að engu líkara var en að hann hafi verið hágrátandi í viðtali sínu við blaðamann.

Yfirleitt er okkur Keflvíkingum sama hvað um okkur er sagt, við leggjum okkur hart fram í æfingum og keppni og reynum að ná árangri. En stundum vilja menn svara fyrir sig og ætla ég að gera það í örstuttu máli hér.

Ég átti um fimm mínútna spjall við Mika, þjálfarann finnska, um klukkustund fyrir leik, þar sem ég þekki manninn lítillega. Ég spurði hann um aðbúnað og slíkt og tjáði hann mér þá að allt væri til fyrirmyndar og að þeir væru mjög ánægðir með dvöl sína hér. Því brá mér verulega, degi síðar, að lesa um leiðinlega framkomu forráðamanna Keflavíkur, því ég veit ekki frekar en aðrir um hvað maðurinn er að tala. Við Keflvíkingar höfum tekið á móti ansi mörgum félagsliðum og einnig landsliðum undanfarin ár og án undantekninga hafa menn (hingað til) lýst yfir ánægju með aðbúnað og móttökur, enda höfum við lagt okkur fram um að vera góðir gestgjafar. Og móttökurnar, aðbúnaðurinn og framkoman í þetta skiptið var nákvæmlega eins og í öll hin skiptin. Eins get ég fullyrt að ansi víða um Evrópu eru aðstæður mun verri en hér í bæ. Við vísum því ummælum þjálfarans um hroka og leiðindi til föðurhúsanna. Greinlegt er að leiðinlegasti maðurinn á svæðinu var hann sjálfur.

Mika karlinn fer síðan að setja út á þjálfunaraðferðir Sigurðar Ingimundar og segir að Keflvíkingar hafi mætt með því hugarfari að espa Finnana upp í slagsmál. Hverslags vitleysa er þetta? Vissulega verðum við að viðurkenna að Keflavíkurliðið var arfaslakt í þessum leik, en árangur Keflavíkurliðsins og þjálfarans á Íslandi og í Evrópu á undanförnum árum hefði líklega verið slakari ef við gerðum ekkert annað en að slást, það segir sig sjálft.

Og Mika hefði kannski líka átt að horfa á eigin leikmenn í þessu sambandi, t.d. horfa á hvernig leikmaður nr. 6 setti skrín, því engu líkara var en að hann ætlaði sér að slasa varnarmann í hvert skipti. Finnsku leikmennirnir eru ekki fæddir í gær, þeir slógu frá sér og sumir beittu fólskubrögðum, eins og sást. Það er partur af leiknum, ekki kvörtum við yfir því, en það er hins vegar afar smábarnalegt og í raun lítilmannlegt og aumingjalegt af þjálfaranum finnska að kvarta undan slagsmálum sem engin voru. Hann ætti kannski að skella sér í krullu.

Auk þess er það ekki vaninn að þjálfarar gagnrýni kollega sína með þessum hætti og verður að teljast afar ósmekklegt. Hann talar um að það sé ótrúlegt að Siggi sé landsliðsþjálfari og segir að ekki geti verið mikið í hann varið sem þjálfara. Með þessum ummælum tekst Mika að toppa sjálfan sig og sýna að hann er ekki bara dónalegur, heldur líka heimskur. Þetta er í raun alveg stórkostlegt hjá þessum skapvonda Finna sem ætti að fá sér eitthvað róandi næst áður en hann talar við blaðamann. Það er alveg greinilegt að Mika Turunen er ekki í viðræðuhæfu ástandi svona strax eftir leik, hann vælir bara, veður reyk og romsar út úr sér heimskulegum og ærumeiðandi ummælum í kippum.

Við þökkum annars liði Lappeenranta fyrir leikinn, þeir voru góðir og vel að sigrinum komnir. Við vonum einnig að þeir hafi átt góða ferð heim og óskum þeim alls hins besta í keppninni. Þjálfaranum finnska óskum við þess að enginn andstæðingur snerti hans leikmenn í framtíðinni....

Taka skal fram að sá sem þetta ritar er hvorki þjálfari né forráðamaður Keflavíkurliðsins, heldur áhugamaður sem kann verulega illa við að drullað sé yfir góða félaga með lygum og þvættingi.