Stóri bikardagurinn runninn upp – smá hugleiðing
Annað árið í röð mætir Keflavík í Laugardalshöllina með tvö lið, bæði kvenna og karla. Þetta sýnir, svo ekki verður um villst, að Keflavík er körfuboltabær og starfsemin öflug. Það þarf mikið starf á mörgum vígstöðum til að halda úti topp liðum í kvenna og karlaflokki ár eftir ár og það hefur tekist í Keflavík með þrotlausri vinnu margra fórnfúsra karla, kvenna og fyrirtækja. Þeir sem leggja vinnu sína í þessa starfsemi fá sérlega mikla ánægju út úr því að fá að taka þátt í þessum stærsta viðburði ársins, sjálfum Bikarúrslitum KKÍ & Lýsingar. Þetta er hátíð allra sem leggja hönd á plóginn, hvort sem um ræðir leikmenn eða þjálfara, stjórnarmenn eða stuðningsmenn. Allir munu leggja leið sína í Höllina til að taka þátt í þessari mestu körfuboltaveislu sem íslenskur körfubolti býður upp á. Heimasíðan vill hvetja Keflvíkinga til að standa þétt að baka sínu fólki, því hvatning og stuðningur á stórum stundum getur oft stuðlað að frábærri frammistöðu á parkettinu. Leikmenn eru vitanlega spenntir og stressaðir því mikið er í húfi, en mikilvægt er að koma til leiksins með jákvæðu viðhorfi, reyna að njóta dagsins sem mest menn mega og hafa gaman af.
Tilfinningar leikmanna og stuðningsmanna geta flakkað upp og niður allan skallan, ef svo má segja, því sviptingar í svona leikjum geta verið miklar. Stundum finnst manni allt vera að ganga upp, en svo nokkrum mínútum síðar blasir kannski svartnættið við . . . . og svo færist kannski aftur bros yfir andlitið. Það skilur oft lítið að, sigur og tap, en samt má ekki gleyma því að allir þeir sem taka þátt í svona leik eru sigurvegarar, því þeir eða þær komust í sjálfan úrslitaleikinn. Þó er fátt jafn leiðinlegt og að fá silfurverðlaun eftir svona leik, það verður að viðurkennast. En aðeins eitt lið getur unnið og hitt liðið verður að tapa. Þeir sem tapa eru þó ekki minni menn eða konur fyrir vikið, við skulum hafa það hugfast. Leikum af krafti og hvetjum okkar fólk . . . . og megi betri liðin vinna!
Dómarar leikjanna hafa vandasamt verk með höndum. Þeir munu reyna að sinna því af kostgæfni og vita mæta vel að taugar leikmanna og áhorfenda eru þandar. Þeir þurfa að ná tökum á leiknum og láta hann flæða, eins og stundum er sagt. En dómararnir gera líka sín mistök og það er partur af leiknum. Áhorfendur verða að viðurkenna þá staðreynd og trúa því staðfastlega að dómarar gera sitt besta. Því verða þeir að fá starfsfrið. Áhorfendur eiga að reyna að einbeita sér að því að hvetja sitt lið, en láta dómarana um dómgæsluna. Slíkt eykur bara gæði leiksins.
Svo skemmtilega vill til þetta árið að í báðum úrslitaleikjunum mætast risar. KR og Keflavík eru risarnir í kvennaboltanum og Keflavík og Njarðvík eru risarnir í karlaboltanum. Því er vart hægt að hugsa sér skemmtilegri viðureignir, svona fyrirfram. Þjálfara allra liðanna hafa legið yfir andstæðingunum og stúderað hvaða varnarafbrigði henta best, hvaða sóknarkerfi á að leggja áherslu á, hvaða leikmenn andstæðinganna þarf að stöðva. Einnig er sérlega mikilvægt að leikmenn nái upp réttu spennustigi fyrir svona leik. Ef spennustigið er of hátt eru menn stressaðir og leika undir getu. Ef spennustigið er of lágt ná menn ekki að leggja sig fram. Akkúrat rétta spennustigið, smá stress og mikil tilhlökkun, er ávísun á góðan árangur. Þetta þurfa allir leikmenn að finna út hjá sjálfum sér.
Heimasíðan er vitanlega ekki hlutlaus í þessum málum. Hún heldur afdrifalaust með Keflavík og telur að keflvísku liðin geti unnið báða Bikartitlana. Hins vegar veit hún að ekkert er sjálfgefið í boltanum og andstæðingarnir eru öflugir. Því þurfa Keflavíkurliðin á topp leikjum og dyggum stuðningi að halda til að landa sigrum.
Njarðvíkurliðið hefur verið í umræðunni undanfarna daga og vikur vegna meiðsla og leikbanns Páls Kristinssonar. Þegar á hólminn kemur munu þó eflaust meiddir menn harka af sér meiðslin og gefa allt sem þeir eiga. Þetta er jú bikarúrslitaleikur og þannig á það að vera. Ef þess er nokkur kostur að leika, þá leika menn í Bikarúrslitum. Það er bara þannig.
Okkar menn og konur eru fyrirfram talin sigurstrangleg. 67% netverja spá karlaliðinu sigri og 85% spá kvennaliðinu sigri. En þetta má ekki orsaka óþolinmæði. Við þurfum ekki að taka forystuna á fyrstu mínútu og halda henni út allan leikinn. Við þurfum hins vegar að leika af krafti allan leikinn og halda okkur inni í honum það vel að þegar kemur að lokakaflanum, þá höfum við alla möguleika á sigri.
Nú er stutt í leikina og stemmningin vex. Heimasíðan vill óska öllum sem taka þátt góðs gengis og vonast að sjálfsögðu eftir góðum úrslitum. ÁFRAM KEFLAVÍK!!!