Stórkostleg skemmtun í boði – körfuboltasýning af bestu gerð !!
Jæja, þá er þriðji leikurinn í vændum. Ef fjörið og tilþrifin verða eitthvað í líkingu við það sem boðið hefur verið upp á í undanförnum tveimur leikjum, verður enginn svikinn af því að leggja leið sína í Röstina annað kvöld.
Sumir hafa haft á orði að Keflavíkurliðið eins og það er að leika nú bjóði upp á besta körfubolta sem nokkurt íslenskt lið hafi nokkurn tímann gert. Nú fækkar tækifærunum til að sjá þetta frábæra lið spila og kannski er bara einn leikur eftir, kannski tveir og kannski þrír. Erfitt að segja . . .
Allt getur enn gerst og við hvetjum Keflvíkinga endilega til að heimsækja Grindavík á morgun, hver veit hvenær körfuboltaveisla í þessum gæðaflokki verður næst í boði . . . . meira um leikinn á morgun.
Ed og Damon eru verulega tilþrifamiklir leikmenn og ásamt Magga, Gaua, Jonna, Fal og öllum hinum bjóða þeir upp á sýningar af bestu gerð um þessar mundir:
|
|