Stórkostleg skemmtun þegar Keflavík vann Madeira 114-101 í frábærum spennuleik
Þeir svíkja ekki Evrópuleikirnir í Sláturhúsinu, svo mikið er víst. Þvílík og önnur eins körfuboltaveisla eins og í kvöld hefur ekki sést lengi. Flugeldasýning í upphafi, háspenna í seinni hálfleik, öflugir andstæðingar og kröftugir stuðningsmenn. Getur ekki klikkað.
Madeira mætti til leiks með réttu hugarfari, það var ekkert vanmat á ferðinni í þetta skiptið. Þeir spiluðu stíft á Gunna og Magga og ætluðu ekki að leyfa nein frí þriggja skot. Þeir voru hraðir og ákveðnir. Og eftir nokkurra mínútna leik var staðan orðin 6-11 og greinilegt að andstæðingarnir voru klárir í slaginn.
En þá komst Keflavíkurhraðlestin á sporið og lestarstjórinn var enginn annar en Nick Bradford. Pilturinn sá réð sér vart fyrir kæti og smitaði bæði meðspilara og áhorfendur með leikgleði sinni. Sérlega gaman að hafa hann aftur við stjórnvölinn í lestinni. Og aftur var það Gunnar "euro" Einarsson sem fór fyrir liði sínu í stigaskorun. Nú voru það ekki þristarnir heldur fór hann nær körfunni og skoraði hverja glæsikörfuna á fætur annarri, þar sem hann stökk aftur á bak og skaut boltanum í háum boga yfir hávaxna varnarmenn Portúgalana. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 34-21 og í hálfleik var hún orðin 66-49, mest var hún 23 stig í stöðunni 63-40. Og Gunni hafði sett 20 stig í fyrri hálfleik. Nóg var um glæsitilþrif og hraðan körfubolta, Jonni, Nick og Glover áttu allir flottar troðslur og Maggi átti þrist dauðans þegar hann smellti honum niður á ótrúlegan hátt með varnarmann í andlitinu langt utan línu.
Maggi átti stórleik og setti m.a. niður fjóra þrista, einn svakalegan (mynd fengin að láni hjá www.vf.is )
Bobby Jo Hatton er svaka spilari (nr. 9) og dreif hann sína menn áfram í byrjun seinni hálfleik. Madeira er hörkulið og ásamt Hatton voru þeir McCottry (nr 14) og Kenzevic (nr 4) skæðir, auk þess sem litli Fernandes bróðirinn (nr 15) er fanta skytta. Þeir spýttu í lófana og minnkuðu forskotið í þriðja leikhluta sem þeir unnu 31-18. Á þessum tíma lentum við í villuvandræðum og voru þeir Jonni og Glover lengst af utan vallar. Í þeirri stöðu var erfitt að eiga við Madeiringa. Þeir gerðu 10 stig í röð og náðu síðan að jafna leikinn í stöðunni 79-79. Þá voru stuðningsmenn orðnir stressaðir og útlitið orðið dekkra. En Elentínus Margeirsson kom sterkur inn af bekknum og gerði 5 síðustu stigin í leikhlutanum. Staðan 84-79.
Síðasti fjórðungurinn var síðan hrein snilld. Með villuvandræðin í botni tókst Keflvíkingum að ná aftur tökum á leiknum með samstilltu átaki og byggja aftur upp forskot, 88-80 og allt leit vel út. En þá kom 7 stiga sókn frá Madeira (ótrúlegt en satt!) þristur og villa, tæknivíti á bekkinn og karfa í kjölfarið - alls sjö stig í einni sókn og forystan dottin niður í aðeins 1 stig, 88-87. En aftur sýndu Kefarar styrk sinn og átti Arnar Freyr glæsilegan þrist og Maggi ótrúlegt fade-away jump skot til að byggja aftur upp forskotið. Nikkarinn stal tveimur boltum á ögurstundu í vörninni og Gloverinn var sterkur á lokasprettinum. Aftur náði Keflavík yfirhöndinni og sigurinn var farinn að blasa við þegar Nick átti glæsilegt "three-point-play" og náði forskotinu upp í 9 stig og aðeins 2 mín eftir.
Í lokin voru Portúgalarnir í eltingaleik og náðu aldrei í skottið á sterkum og sjálfsöruggum Kefurum. Maggi var pottþéttur á línunni og í lokin var sigurinn 13 stig, 114-101. Keflavík enn ósigraði í riðlakeppninni á heimavelli og hefur tekið forystuna í riðlinum, eina liðið sem enn er ósigrað, að vísu eina liðið sem enn hefur ekki leikið útileik. Það er þó nokkuð ljóst að erfitt verður að landa sigri í Madeira, því þeir eru með skemmtilegt lið, spila hraðan bolta og sérstaklega er Hatton flottur leikmaður, skytta, drævari og alles.
Keflavík á hrós skilið í kvöld, allir skiluðu sínu. Gunni (22 st) og Maggi (24 st) eru algerir euro-kallar og brilleruðu eina ferðina enn í alvöru stórleik. Nick (23 st) geislaði og átti flottan alhliða leik, tók m.a. 13 fráköst. Glover var í villuvandræðum en gerði samt 20 stig og tók 12 fráköst á 24 mín. Jonni var mjög góður, í vörn og sókn, en lenti í vandræðum með villurnar, rétt eins og Glover. Arnar átti flotta spretti og Sverrir sýndi kunnuga takta í vörninni, auk þess sem hann setti niður góða spjaldið-oní körfu í lok leiks. Elli átti glæsta innkomu, eins og áður hefur verið sagt.
Jonni var góður og skoraði hreint ótrúlega körfu úr hraðupphlaupi, auk þess sem hann drævaði létt framhjá risunum.
Það verður að segjast eins og er að leikurinn í kvöld var einn sá allra skemmilegasti sem undirritaður hefur séð. Tilþrif, hraði, spenna og stemming, hvað vill maður meir? Þeir rúmlega 600 áhorfendur sem mættu fengu fullt fyrir peninginn og skemmtu sér konunglega og studdu dyggilega við liðið. Maður veltir því bara fyrir sér af hverju það eru ekki 1000 manns á svona leik? Amk er ekki hægt að biðja um meiri skemmtun. Vonandi verður húsið troðfullt í næstu viku þegar Bakken Bears mæta, því það verður síðasti Evrópuleikurinn í bili, amk.
Nú er staðan vænleg, en ljóst er að róðurinn er samt þungur. Tvö lið komast pottþétt upp úr riðlinum og liðið í þriðja sæti á möguleika, það fer þó eftir úrslitum úr hinum riðlunum. Planið er að vinna alla heimaleikina og taka að auki einn útileik. Ef það myndi takast, verður að telja pottþétt að Kef komist áfram.
Í tveimur orðum sagt: Frábær leikur!