STÓRLEIKUR á föstudaginn: Keflavík – KR í Kjörísnum
Þá er komið að fyrsta úrslitaleik leiktíðarinnar!
Hin fjögur fræknu í Kjörískeppninni mætast í Keflavík á föstudaginn og sigurvegararnir leika til úrslita á laugardaginn. Til mikils er að vinna því í boði eru einu peningaverðlaunin í íslenskum körfubolta. Eins og allir eiga að vita mætast fyrst Haukar og Grindavík kl. 18.30 og síðan Keflavík og KR kl. 20.30.
Við ætlum ekki að rýna mikið í leik Hauka og Grindavíkur, látum nægja að segja að reynslan er Grindavíkurmegin og því teljum Grindjána sigurstranglegri. Þeir hafa stærra vopnabúr, þótt Haukarnir hafi Steve Johnson sem leikið hefur öðrum betur á yfirstandandi leiktíð. Við spáum Grindavík sigri í hörkuleik.
Þá er það leikurinn sem við bíðum eftir. KR-ingar hafa á góðu liði að skipa, ekki síst eftir endurkomu Baldurs og þó sérstaklega eftir að liðsaukinn að norðan, Óðinn Ásgeirsson, barst þeim á dögunum. Þeir sýndu styrk sinn á mánudaginn með öruggum sigri gegn Grindavík.
Styrkur KR felst í hávöxnu leikmönnum, Bandaríkjamanninum Flake, Magna, Baldri og Óðni. Þessir stóru strákar eru leiknir og geta skotið að utan, sérstaklega Snæfellingurinn Magni og Akureyringurinn Óðinn. Þar fyrir utan er Suðkrækingurinn Arnar Kára sprækur bakvörður sem hefur góða tækni, prýðileg skot og leikur sterka vörn. Auki eru Hvergerðingurinn Skarphéðinn Ingason og Akureyringurinn Magnús Helgason prýðilegir skiptimenn.
Veikleikar KR eru kannski helst þeir að þeir eru frekar þunnskipaðir í bakvarðarstöðunni. Þungi leikstjórnarinnar hvílir á Arnari og hafa þeir ekki mikið upp á að hlaupa ef hann er ekki í essinu sínu. Því gætu þeir hugsanlega verið viðkvæmir fyrir stífri vörn, jafnvel pressuvörn.
Heimasíðan telur að Keflavík þurfi að ná upp góðri baráttu undir körfunum til að verjast stóru mönnum KR-inga. Ákveðin villuhætta er fyrir hendi, ekki síst þar sem Jonni og Kevin eiga það til að safna villum. Því verða allir hinir að sjá til þess að KR komist ekki nálægt körfunum, sérstaklega Flake, en hann er afar leikinn skorari i teignum.
Annað atriði sem skiptir máli verður kraftmikil pressa á boltann, eins mikil og möguleg er. Þar eru veikleikar KR og við teljum að bakverðir Keflavíkur eigi að hafa þó nokkra yfirburði gagnvart KR. En að sama skapi verðum við að varast að ætla bara að leika sóknarleikinn utan 3ja stiga línunnar, þó vissulega geti það hjálpað ef nokkrar bombur detta niður. Það er nefnilega nauðsynlegt að láta KR-risana hafa nóg að gera í vörninni og því verður boltinn reglulega að fara inn í teig, annað hvort með sendingum á Damon, Jonna og Kevin, eða með keyrslum bakvarðanna inn í hjarta varnarinnar.
Eins og venjulega er auðvelt að skrifa um þessa hluti, það er framkvæmdin sem er erfiðari. En til að summera þetta upp, erum við sannfærðir um að ef aggressívur varnarleikur fari saman við skynsaman sóknarleik þá verði sigurinn okkar. Til gamans leyfum við okkur að spá 3ja stiga sigri fyrir Keflavík í skemmtilegum leik sem endar 82-79 .
Nú er bara að mæta á Sunnubrautina, hvetja sína menn og njóta skemmtunarinnar – Áfram Keflavík!