Stórleikur á morgun - Fannar með
Stórleikur á morgun þegar Grindvíkingar mæta í Sláturhúsið kl 19:15.Grindvíkingar eru með 30 stig í öðru sæti eftir 18 leiki en Keflavík með 24 eftir 17 leiki því er enn veik von um að ná öðru sæti með sigri og svo aftur á laugardag gegn KFÍ . Fannar mun vera í liði Keflvíkinga annað kvöld eftir mánaða hlé vegna meiðsla fyrst puttabrot og svo það sem allir eru komnir með nóg af. Keflvíkingar gætu í fyrsta skipti leikið með fimm tveggja metra menn inná í einu Dóri bakvörður, Jonni og Nick framherjar, Diddi litli og Fannar undir, ekki slæmt það, en það kemur í ljós annað kvöld. Heimasíðan hvetur stuðningsmenn sína til að mæta og styðja sína menn í lokabáráttunni.
Minnum á leik Keflavíkur og KFÍ á laugardagskvöld kl. 19:15