Stórleikur á morgun í kvennaboltanum
Það verður hart barist á morgun í Toyota Höllinni þegar Hamarsstúlkur koma í heimsókn. Þetta er síðasti leikurinn í riðlakeppni Iceland Express-deildarinnar, en það lið sem sigrar á morgun sleppur við 8-liða úrslitakeppni og flýgur beint í 4-liða úrslit. Eins og staðan er núna, þá má Keflavík tapa með 3 stigum, en allt tap umfram það þýðir að Hamarsstúlkur hafna í öðru sæti deildarinnar. Allir hvattir til að láta sjá sig og öskra stelpurnar áfram!
Leikurinn hefst klukkan 19:15.
Áfram Keflavík!