Fréttir

Körfubolti | 3. nóvember 2004

Stórleikur hjá Gunna Einars í óvæntum stórsigri á Reims í Bikarkeppni Evrópu, 93-73

Gunnar Einarsson mætti greinilega tilbúinn í fyrsta stórleik vetrarins. Hann gerði fyrstu sjö stig heimamanna og var hreinlega óstöðvandi í fyrri hálfleik. Aðrir fylgdu fordæminu og leikur liðsins var í allt öðrum gæðaflokki en fyrri leikir liðsins í vetur, enda Evrópukeppnin í húfi. Frakkarnir voru stórir og sterkir, en greinilega áttu þeir ekki von á mikilli mótspyrnu. Þeir voru á hælunum í byrjun og vörn þeirra náði engan veginn að trufla Gunna & Co sem náðu 15 stiga forskoti í fyrri hálfleik, 31-16.

Áfram hélt æsingurinn í öðrum leikhluta og tók Glover að skora grimmt. Vörnin var hreint frábær, sérstaklega eftir að Mike og Jonni komust í smá villuvandræði, því þá breyttu þjálfararnir í svæðisvörn sem dró allar tennurnar úr atvinnumönnunum frá kampavínshéraðinu Reims. Gunni hélt áfram að bomba, en hann skoraði 22 stig í fyrri háflleik og alls 28 stig í leiknum. Þar af voru 6 þristar úr 9 tilraunir, tveir þeirra langt utan við 3ja stiga línuna. Staðan í hálfleik var 53-33 og áhorfendur vissu ekki hvort þeir gætu trúað sínum eigin augum.

 Í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn, en þó hélst munurinn í kringum 20 stig mest allan tímann. Mest fór hann í 26 stig, en rétt fyrir leikslok minnkaði hann í 14 stig. Þá var komið að þætti Magnúsar Gunnarssonar sem setti niður þrjá þrista á skömmum tíma og gulltryggði sigurinn. Lokastaðan var 93-73 og glæsilegur sigur í höfn.

Auk Gunnars og Magnúsar átti Anthony Glover stórleik, en hann var stigahæstur allra með 33 stig. Drengurinn sá er nautsterkur og illviðráðanlegur undir körfunni sökum leikni sinnar og líkamsburða. Hann nýtti 11 af 17 skotum sínum og tók 9 fráköst. Anthony má þó bæta vítanýtingu sína, því hann skoraði aðeins úr 8 af 18 tilraunum. Reyndar var vítanýting liðsins slök, 12 af 23 sem er aðeins rúm 52%.

Sverrir, Arnar og Jonni voru allir grimmir í vörninni, en eins og áður sagði var svæðisvörnin vel leikin. Gunni Einars var þar einnig grimmur, en alls stálu Keflvíkingar 17 boltum í leiknum sem telst vera ansi gott.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Frakkarnir voru gersamlega slegnir út af laginu, þeir áttu greinilega ekki von á þessari mótspyrnu. Þjálfarinn þeirra var enda öskureiður allan leikinn og að honum loknum kallaði hann leikmenn sína inn á gólfið og lét þá hlaupa og gera alls konar púlæfingar um leið og hann öskraði á þá. Gera má ráð fyrir að þeir mæti tilbúnir í heimaleikinn. Besti leikmaður Frakkanna var Kaninn Ryan Fletscher, nr. 15, en hann gerði 11 stig og hirti 13 fráköst.

Glæsilegur sigur og stórleikur Gunnars, bæði í vörn og sókn, var staðreynd. Evrópukeppnin fer vel af stað, líkt og í fyrra, og nú er bara að fylgja þessum sigri eftir með fleiri slíkum. Næstu tveir leikir eru einnig á heimavelli, næsta miðvikudag gegn Madeira og síðan fimmtudaginn 18. nóv. gegn dönsku meisturunum frá Bakken Bears.

Til hamingju með þetta strákar og til hamingju áhorfendur og stuðningsmenn sem hvöttu dátt allan tímann.