Fréttir

Körfubolti | 10. desember 2002

Stórleikur hjá stúlkunum á morgun, miðvikudag, gegn ÍS í Kjörísnum

Undanúrslit Kjörískeppni kvenna fara fram annað kvöld, miðvikudag og hefur KKÍ kosið að láta leikina fara fram á sitt hvorum staðnum á sama tíma, nánar tiltekið á heimavöllum KR og ÍS. KR-Grindavík hefst kl. 19.15 og ÍS-Keflavík hefst örlitlu seinna, kl. 19.30.

(Of langt mál er hér að útskýra leiktilhögun í kvennahluta Kjörískeppninnar, því engin reglugerð þar að lútandi er til. KKÍ hefur því leikið af fingrum fram varðandi skipulag keppninnar og haft að leiðarljósi “mínútur í sjónvarpi” og verðlaunafé frá Kjörís. Þetta tvennt er best tryggt með því að leika undanúrslitin sem fyrr segir og síðan úrslitin laugardaginn 21. des. í Smáranum. Ekki eru allir alls kostar sáttir við framkvæmd KKÍ á þessum málum og finnst sumum að óðs manns æði sé að leika úrslitaleik þremur dögum fyrir jól. En það er annað mál, svona verður þetta í ár og síðan verður væntanlega samþykkt reglugerð um framkvæmd keppninnar á næsta ársþingi KKÍ, svo þessi mál komist í fastari skorður.)

En aftur að leiknum . . .

Keflavíkurdömur hafa leikið aldeilis frábærlega það sem af er vetri. Þær hafa leikið alls 11 leiki í deild og Kjörís og unnið þá alla, að meðaltali með yfir 20 stiga mun. Alls sex stúlkur (Sonia, Birna, Erla, Marín, Anna og Kristín) skora að meðaltali um eða yfir 10 stig í leik sem sýnir glöggt hvílik breidd er í liðinu. Skemmst er frá því að segja að yfirburðirnir hafa verið algerir hingað til, þó gera megi ráð fyrir að önnur félög fari að veita meiri keppni eftir því sem á líður.

Sjá tölur Keflavíkurliðsins úr deildinni.

ÍS-stúlkur misstu töluvert úr liði sínu fyrir núverandi leiktíð en eru allar að hressast og unnu á dögunum sinn fyrsta sigur, og það gegn KR. Meadow Overstreet hefur gengið til liðs við þær að nýju og liðið er að styrkjast.

Það er því alveg ljóst að Keflavík mætir sterkari ÍS-liði en síðast þegar Keflavík vann með 32 stigum 85-53. Í fyrsta leik liðanna í haust sigraði Keflavík með 17 stigum, 63-46 í Kennaraháskólanum.

Til mikils er að vinna því sigurliðið tryggir sér a.m.k. 50 þús. krónur því í úrslitunum hlýtur sigurvegarinn 100 þús. kr. og félagið í öðru sæti 50 þús. kr.

Við skorum á Keflvíkinga að fjölmenna í Kennaraháskólann á morgun og hvetja stúlkurnar til dáða. Þetta er fyrsti alvöruleikur vetrarins og mikilvægt að ná upp góðri stemmingu.