Fréttir

Karfa: Konur | 9. nóvember 2010

Stórleikur í kvennaboltanum á morgun

Það verður sannkallaður stórleikur í Toyota Höllinni á morgun, en þá mætast kvennalið Keflavíkur og Hamars. Bæði þessi lið hafa unnið alla sína leiki í deildinni til þessa og ljóst er að hér mætast stálin stinn. Hugsanlega verður hægt að sjá framvindu móts með betri augum eftir leikinn á morgun, en bæði þessi lið tefla fram sterkum leikmönnum í deildinni.

Allir stuðningsmenn hvattir til að mæta og styðja við bakið á Keflavíkurstúlkum. Hver veit nema þetta verði þeirra tímabil?

Áfram Keflavík!

 



Pálina Gunnlaugsdóttir verður í eldlínunni á morgun