Fréttir

Karfa: Karlar | 28. nóvember 2011

Stórleikur í kvöld - ALLIR á völlinn

Í kvöld fer fram lokaleikurinn í D-riðli Lengjubikarsins þegar Keflavík og Njarðvík mætast í Toyotahöllinni kl.19.15 í hreinum úrslitaleik um hvort liðið komist í undanúrslit keppninnar og verði eitt hinna "fjögur fræknu".

Njarðvíkingar standa óneitanlega betur að vígi þar sem Keflavík þarf 14 stiga sigur til að slá Njarðvíkingum við eftir 13 stiga tap í fyrri leik liðanna, 77-90.

Snæfellingar hafa þegar tryggt sér farseðilinn í undanúrslit keppninnar úr C-riðli og ljóst að sigurvegarar D-riðils munu mæta þeim n.k. föstudag í Laugardalshöllinni kl. 20.30.

Allir stuðningsmenn Keflvíkinga eru hvattir til mæta af krafti í kvöld og hvetja okkar menn til sigurs. Ath. að Vildarkortin gilda ekki í kvöld, einungis kortin í Stuðningsmannaklúbbinn niðri.