Fréttir

Körfubolti | 17. janúar 2003

Stórleikur í kvöld hjá konunum: Grindavík - Keflavík í undanúrslitum Bikarsins

Þá er aftur komið að alvöru leik hjá Keflavíkurkonum. Þær halda til Grindavíkur til að fá úr því skorið hvaða félag verður þess heiðurs aðnjótandi að leika gegn Haukum eða ÍS í Bikarúrslitum þann 8. febrúar n.k.

Ekkert er skemmtilegra en Bikarúrslit, þannig að allt verður lagt í sölurnar hjá báðum liðum í kvöld. Okkar stúlkur eru að sjálfsögðu sigurstranglegar enda hafa þær unnið alla sína 18 leiki í vetur. Síðasta leik gegn Grindavík unnu þær með fáheyrðum yfirburðum, en varla var að "marka" þau úrslit þar sem yfirburða leikmaður Grindjána, Denise Shelton, lék ekki með. Sú stúlka er með eindæmum snjallur leikmaður og skoraði hún m.a. yfir 50 stig í fyrsta leik liðanna í haust.

Keflavík hefur leikið af fádæma styrk í vetur en ekkert er unnið fyrirfram. Grindavík hefur engu að tapa því varla gera margir ráð fyrir sigri þeirra. Þær geta því lagt stressið til hliðar og mæta eflaust baráttuglaðar til leiks. Allir gera ráð fyrir Keflavíkursigri og eykur það pressuna á okkar stúlkur. En þær eru vanar pressunni og munu eflaust sýna sama grimma varnarleikinn og venjulega. Ef það tekst fylgja hraðupphlaupin og þá eru þær illviðráðanlegar.

Gaman væri að sjá slatta af Keflvíkingum í Grindavík í kvöld, því stúlkurnar bjóða án undantekninga upp á skemmtilegan bolta sem gaman er að horfa á.

ÁFRAM KEFLAVÍK!