Stórleikur í kvöld: Keflavík - Haukar í Bikarnum
Eðli Bikarkeppni er svokallað "knock-out" fyrirkomulag sem þýðir að sá sem tapar er kýldur úr keppni, dáinn og grafinn . . . í heilt ár. Þetta fyrirkomulag á sér langa sögu, ekki í síst meðal knattspyrnumanna í Bretlandi og einnig má nefna að sú körfuboltakeppni sem margir telja þá skemmtilegustu og mest spennandi í heimi er leikin skv. þessu fyrirkomulagi. En það er jú úrslitakeppni ameríska háskólaboltans, NCAA, sem að mestu leyti er leikin í mars ár hvert. Sú keppni inniheldur 64 lið og standa amerískir körfuboltaunnendur á haus í hver sinn sem hún er leikin, enda kölluð "March Madness", þar sem spennan og fjörið er í hámarki.
Í Bikarkeppni KKÍ og Doritos hófu um 30 lið leikinn og nú eru 16 lið enn "á lífi". Þeim fækkar smám saman þar til þau tvö síðustu mætast í úrslitaleiknum í Laugardalshöll, en sá leikur er jafnan sá stærsti á hverju ári í körfunni, líkt og í handboltanum og fótboltanum. Bikarfyrirkomulagið er kannski ekki jafn "sanngjarnt" og löng deildarkeppni, en hins vegar er það spennandi og skemmtilegt fyrir áhorfendur sem geta átt von á blóðugri baráttu í hverjum leik.
Nú þegar er eitt af toppliðum deildarinnar, KR, fallið úr leik. Tvö önnur af betri liðum deildarinnar munu detta út í 16 liða úrslitunum því Njarðvík og Grindavík mætast sem og Keflavík og Haukar. Það er því ljóst að þau tvö lið sem sigra í þessum viðureignum munu eiga góða möguleika á að fara "alla leið" í ár.
Því er leikurinn í kvöld sannkallaður stórleikur. Það er mikið í húfi. Haukarnir byrjuðu sérlega vel í haust og unnu m.a. Njarðvík í þrígang og komust í fyrsta sinn í keppni hinn fjögurra fræknu í Kjörísnum. Síðan hafa skiptst á skin og skúrir, en liðið er stórhættulegt. Kaninn þeirra, Steve Johnson, er einn sá besti á landinu og auk hans eru nokkrir reynsluboltar í liðinu, sbr. Marel Guðlaugsson og Halldór Kristmannsson, en þar utan er liðið að miklu leyti skipað ungum og upprennandi leikmönnum sem eru í mikilli framför hjá Reyni þjálfara Kristinssyni.
Okkar menn hafa hæfileika og getu umfram Hauka, á því er engin spurning. Spurningin hjá okkar liði er hins vegar alltaf sú hvort menn mæti mótiveraðir í leiki, því stundum hefur viljað brenna við að ákveðni vanti. Í kvöld ættu leikmenn þó að hafa alla ástæðu til að vera spenntir og vel stemmdir, því í húfi er öll Bikarkeppnin. Í þeirri keppni fá menn aldrei annað tækifæri. Menn verða að nýta það eina sem býðst.
Heimasíðan býst því við okkar mönnum í góðum gír og tilbúnum í slaginn. Einnig vonumst við eftir mörgum áhorfendum, því fátt er skemmtilegra en góður bikarleikur. Liðið er nú fullskipað að nýju og okkur því ekkert að vanbúnaði. ÁFRAM KEFLAVÍK!