Stórleikur í Sláturhúsinu í kvöld !
Þá er komið alvöru "íslenskum" leik í Sláturhúsinu. Úrslitaliðin frá því í vor, Keflavík og Snæfell, leiða saman hesta sína í 32ja liða úrslitum Bikarkeppninnar. Bikarkeppnin er alltaf stórskemmtileg því hver einasti leikur er úrslitaleikur, það er bara eitt tækifæri - mistök eru ekki fyrirgefin, því liðið sem tapar verður ekki meira með, svo einfalt er það.
Keflavík er núverandi Bikarmeistari og á titil að verja. Reyndar hefur Keflavíkurliðið ekki tapað í Bikarkeppninni síðan 5. janúar 2002 er Tindastóll hafði betur í Síkinu á Króknum í 8-liða úrslitum. Síðustu 10 leikir hafa unnist enda er Keflavík sem stendur tvöfaldur Bikarmeistari (2003 og 2004), en í hitteðfyrra mættust einmitt lið dagsins, Keflavík og Snæfell, í úrslitaleiknum. Sá leikur fór fram 8. feb. 2003 og var eign Keflavíkur með þá Damon og Ed í fararbroddi.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar hjá vesturlendingunum. Snæfell tilheyrir síðan í fyrra "stóru" liðunum á Íslandi og hefur skipað sér á bekk með Suðurnesjaliðunum, bæði í fyrra og í ár. Þeir eru nýkrýndir Hópbílameistarar og hafa örugglega hug á að gera atlögu að "Bikarnum" því enn eiga Snæfellingar eftir að landa "stórum" titli.
Lið gestanna er sterkt, sér í lagi sex manna lið þeirra. Hlynur og Siggi Þorvalds, tveir sprækir Kanar og síðan komu Pálmi úr Breiðablik og Magni frá KR. Þetta lið er með því besta sem sést hér á landi, allt hörku leikmenn. Sjöundi leikmaðurinn er Lýður sem getur verið góður, en eftir það er reyndar fátt um fína drætti. Þó geta menn komið af bekknum og skilað mínútum.
Snæfellingar eru samt í smá erfiðleikum um þessar mundir því þeir eru yfir launaþakinu. Þeir fá að því er okkur skilst 10 daga frest til að gera breytingar á málum sínum, en fram að þeim tíma þurfa þeir að hvíla einn af launamönnum sínum. Líklegt verður að teljast að Magni hvíli í dag, en gegn ÍR á dögunum var Peebles hvíldur. Hvað svo gerist er óvíst, en ljóst er að þeir verða að segja upp einhverjum samningum. Spáum ekki meira í það.
Sæfell hefur aldrei unnið í Sláturhúsinu frá því að þeir hófu að leika körfubolta fyrir nokkrum áratugum. Vonandi heldur heimavöllurinn í kvöld enn og aftur. Okkar menn hafa nú fengið nauðsynlega hvíld eftir frækna för til Frakklands og leiðinda tap á Selfossi. Við vitum að nú er alvöru lið mætt í heimsókn og við þurfum alvöru leik til að ná sigri. Snæfellingarnir eru stórir og því þurfa menn að vera sérlega grimmir í fráköstunum og keyra vel upp hraðann. Þetta verður topp slagur og aðeins einn sigurvegari!
Við bjóðum sérstaklega vin okkar Torfa velkominn í Sláturhúsið og auðvitað alla aðra Snæfellinga líka. Við áttum góðar rimmur s.l. vor og vonandi fáum við meira af því sama í kvöld.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!