Fréttir

Körfubolti | 10. nóvember 2004

Stórleikur í Sláturhúsinu í kvöld!

Þá er komið að enn einum Evrópuleiknum, þeim sjötta á rúmu ári á parkettinu á Sunnubrautinni, í Sláturhúsinu alræmda. Þessir leikir hafa undantekningalaust verið í hæsta gæðaflokki, bæði hvað varðar körfubolta og spennu. Nema sá síðasti kannski, því það var hálfgert burst og spennan minni en vanalega. Engin hætta er á að Madeiringar vanmeti Keflavík, þeir komu hingað fyrir ári og töpuðu. Þess vegna mættu þeir núna tveimur dögum fyrir leiks til Kef og hafa notað tímann til að slaka á og byggja sig upp. Þeir töpuðu nefnilega fyrsta leiknum í riðlinum, frekar óvænt, á heimavelli gegn Bakken og ætla sér pottþétt að ná í tvö stig í kvöld. Besti leikmaður Madeira er Puerto Rikaninn Bobby Joe Hatton.

Keflvíkingar geta komist á toppinn í riiðlinum með sigri í kvöld. Þeir hafa alltaf verið í stuði í Evrópukeppninni og vonandi verða þeir það í kvöld líka. Áhorfendur skipta líka miklu máli og ef góð stemming er í húsinu þá hvetur það strákana til dáða. Miðað við umtal og umfjöllun má gera ráð fyrir skruggustemmingu í Sláturhúsinu í kvöld . . . .