Stórleikur. Keflavík-Bakken Bears
Keflavík leikur á fimmtudaginn þriðja leik sinn í Bikarkeppni Evrópu. Það eru Dönsku meistararnir Bakken Bears sem mæta til Keflavíkur. Það er ekki við öðru að búast en þetta verði hörku leikur, enda leikmenn Keflavíkur verið í miklu stuði í þessum Evrópuleikjum. Unnið góða sigra á Reims og CAB Madeira. Gunnar Einarsson fyriliði hefur spilað frábærlega í þessum leikjum með 25 stig að meðaltali, 5 fráköst og 61,5 % nýtingu í 3 stiga skotum. Anthony Glover hefur líka spilað fanta vel og er með 26,5 stig og 10,5 fráköst. Magnús Gunnarsson er svo með 20 stig og 44,4 % í þriggja stiga skotum.
Bakken Bears hafa verið með eitt besta lið í Dönsku deildinni og hampað mörgum titlum síðustu ár. Þetta er þó þeirra fyrsta skifti í Bikarkeppni Evrópu. Þeir fóru vel af stað og unnu góðan 88-82 sigur á lið CAB Madeira á útivelli. Þar fór Danski landsliðsmaðurinn Chris Christoffersen á kostum skoraði 28 stig, tók 12 fráköst og var með 80 % skotnýtingu í leiknum. Bakken vann seinast leikhlutann 16-25. Í síðasta leik mætu þeir særðum Reims í Frakklandi og töpuðu illa 90-66. Stigahæstir í þeim leik voru Jeff Schiffner (USA) með 21 stig, Chris með 17 stig (11 fráköst) og Hansen með 13 stig.
Bakken spilaði á heimavelli í Dönsku deildinni um helgina og unnu góðann sigur á Team Sjælland 100-74. Martin Thuesen var með 32 stig, Jeff Schiffner með 22 stig, Jens Jensen með 17 stig og Chris með 9 stig og 14 fráköst.
Það er nokkuð ljóst að Bakken Bears er með vel skipað lið. Í liðinu eru bara Danskir leikmenn að frátöldum Jeff Schiffner frá USA. Helstu stjörnur ef svo má segja eru Chris Christoffersen 2.18 sm, framherjinn Jeff Schiffner og bakvörðurinn Marin Thuesen
.
Eins og áður sagði svakaleikur á fimmtudaginn kl 19:15 og gaman að sjá hvort strákarnir eiga enn einn stórleikinn í Evrópukeppninni. Hér fyrir neðan er staðan í riðlinum og Keflavík að sjálfsögðu á toppnum. Allir á völlinn og ÁFRAM KEFLAVÍK.
vs.
GROUP A | |||||||||||||||||||
|
|
| |||||||||||||||||
|
|
| |||||||||||||||||
|
|