Stórsigur Stjórnarinnar í máli og myndum . . .(E.S. fer á kostum)
Á gamlársdag áttust við í annað skiptið á árinu Íslandsmeistarar kvenna og Stjórnin (sem eru reyndar að mestu leyti karlar). Fyrri leikurinn fór fram í vor, skömmu eftir að stúlkurnar hömpuðu Íslandstitlinum. Sú viðureign var í öruggum höndum stúlknanna sem sigruðu 3-1 (hér má lesa um þann leik) þrátt fyrir að dómgæslan hafi verið vafasöm.
Stjórnin lagðist í þunglyndi eftir þann ósigur, en menn sáu að við þetta mátti ekki búa. Siggi B (B stendur fyrir "Baby Shaq") var shanghæaður inn í stjórnina og menn lögðu mikið á sig til að fækka kílóum og koma sér í betra form. Biggi Braga hætti að drekka bjór í marga mánuði og Einar Skafta losaði sig við tæp 300 grömm. Aðrir æfðu sig látlaust. Og árangurinn lét ekki á sér standa. Kvennastjörnurnar mættu reyndar til leiks með vængbrotið lið, en reiknað var með að Íslandsmeistararnir gætu þolað smá skakkaföll. Það vantaði Birnu, Svövu, Marín, Rannveigu og Bryndísi. Svo að nú reyndi á breiddina!
Hjá stjórninni voru helstu kapparnir mættir, en þó vantaði Óla, Særúnu, Binna og Hemma og má því með sanni segja að mikilvæga hlekki hafi vantað í bæði liðin. Fyrirkomulagið var með þeim hætti að leikið var þar til annað liðið hafði skorað 20 stig (1 og 2 stig fyrir körfuna) og til að hafa sigur þurfti annað liðið að sigra í þremur leikjum. Og segja má að stjórnin hafi komið á óvart, því hún sigraði 3-0. Hér að neðan má sjá myndir og komment frá þessum ógurlega kappleik, en þar var boðið upp á körfuknattleik í hæsta gæðaflokki.
+
Hér má sjá liðin tvö stilla sér upp eftir blóðuga baráttu sem endaði með fyrsta tapi Keflavíkurkvenna í vetur! Strákarnir eru örlítið sveittari, enda fannst þeim ósanngjarnt að leika á svo stórum velli.
Eins og sjá má á þesari mynd var hraðinn gríðarlegur í leiknum. Hér geysist Siggi B fram með knöttinn á fleygiferð. Reyndar er Gunni Jó ekki líklegur til að taka sprettinn og ekki er alveg ljóst hvað Einsi Skafta er að brasa undir körfunni.
María Ben setur skrín fyrir Önnu Maríu, en kemst að því að það er ekki auðvelt að setja hindrun á Einar stóra!
Boltinn er í loftinu, ein af fjölmörgum glæsikörfum stjórnarinnar í uppsiglingu, því miður var myndin tekin of snemma, en ef vel er að gáð sérst að Biggi er búinn að koma sér í vænlega stöðu. Skotið geigaði, en Biggi stökk upp af alkunnum krafti og gerði sér lítið fyrir og tróð frákastinu, verst að við náðum ekki mynd af því . . . en hver tók skotið?
Bára Braga ætlar hér að lauma sér í frákastið en Siggi gefur ekkert eftir. Hér er Gaui Skúla mættur óvænt, en kalla þurfti til hans þegar Krissi varð að fara í símann. Stúlkurnar hafa kært leikinn og segja að Gaui hafi verið ólöglegur. Kæran verður tekin fyrir á næsta stjórnarfundi og telja verður líklegt að henni verði vísað frá....
Þessi mynd er afar sérstök (það þarf að smella á hana og skoða hana aðeins stærri). Einar var hér með galdrabrögð sem ekki hafa áður sést í Sláturhúsinu, gætið sérstaklega að fótaburðinum....
......og hér fagna sigurreifir stjórnarmenn í leikslok, nú ætla þeir ekkert að æfa meira, heldur bíða bara eftir næsta leik :)