Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 27. nóvember 2008

Stórtap fyrir UMFN.......... AARRRGG !!

Ekki var það nú sá stórleikur sem við vonuðumst eftir sem að okkar lið í 11.flokki (f.'92) sýndi í kvöld, á móti Njarðvík, hér í Toyota-höllinni. UMFN drengir áttu tvo spretti í leiknum þar sem þeir skoruðu úr hverju hraðaupphlaupinu á fætur öðru og kláruðu leikinn.  Eftir fyrsta leikhluta sem var ótrúlega hægur, og báðum liðum gekk illa að skora, var staðan 7 - 15.  Í stöðunni  16 - 23 kom fyrra áhlaup Narðvíkurdrengja  og breyttist staðan í 19 - 39 á örskömmum tíma. Staðan í leikhléi var 22 - 41. Þriðji leikhluti hélst svo jafn og stóðu leikar 36 - 58. Í fjðrða og síðasta leikhlutanum kom seinna hraðaupphlaups-áhlaup UMFN-drengja sem breyttu stöðu leiksins úr 38 - 62 í 38 - 81. Okkar lið skoraði ekki í ríflega 7 mínútur og fór síðasti leikhlutinn 9 - 26. Leiknum lauk því með stórsigri Narðvíkurdrengja 45 - 84. Þátttöku Keflavíkurdrengja í bikarkeppni KKí er því lokið þennan veturinn.

Keflavíkurdrengirnir eiga mikið inni og voru hálf smeykir við UMFN-drengina í kvöld þar sem þetta er eitt sterkasta liðið í þessum árgangi.  Strákarnir hafa æft mjög vel í allt haust og eru á mikilli uppleið og munu leika í A-riðli í næstu umferð Íslandsmótsins þar sem þeir hafa ekki náð að leika síðustu árin.  Liðin munu því mætast aftur í næstu umferð Íslandsmótsins n.k. janúar og verður stefnan sett á að snúa þessu algjörlega við og sigra þann leik.

Stigaskor okkar drengja í kvöld:
Sævar Eyjólfsson. 4, Daníel Gylfason 1, Gísli Steinar 2, Sigurður Guðmunds. 4, Andir Daníelsson 10, Kristján Smárason 2, Eðvald Ómarsson 8, Andri Skúlason 8, Hafliði 3 og Atli Dagur 3.
Vítanýting liðsins var 10/19 og settum við 5 þirsta.

Áfram Keflavík