Fréttir

Körfubolti | 14. desember 2003

Strákarnir fara í fimm daga ferðalag til Portúgals

Í fyrramálið kl. 7 (mánudagsmorgun) fara Keflavíkurpiltar í 2ja leikja 5 daga keppnisferð til Portúgals. Þeir fljúga til London með Flugleiðum og skipta þar um vél. Þaðan fljúga þeir til Porto í Portúgal þar sem þeir verða sóttir af starfsmönnum Ovarense, en það félagið er staðsett í borginni Ovar sem er í um 40 mínútna fjarlægð frá flugvellinum í Porto.

Þeir verða komnir upp á hótel um kl. 17 og fara á æfingu fljótlega eftir komu. Önnur létt skotæfing verður í hádeginu á þriðjudag og svo hvíla menn sig fram að leiknum sem hefst kl. 21.00 að staðartíma sem er sami tími og hér á Íslandi.

Að leik loknum er haldið beint í háttinn því strákarnir þurfa að mæta í morgunverð kl. 06.00 á miðvikudaginn til að ná fluginu til Madeira. Vonandi verða engin vandkvæði á fluginu, en á Madeira er ekki auðveldur flugvöllur og oft þarf að fresta flugi vegna þoku.

Ef allt gengur upp eru strákarnir mættir um miðjan dag til Madeira og taka eina æfingu um kvöldið. Þeir ættu að hafa smá tíma til að skoða sig um á þessari fallegu eyju sem er rétt norðan við Kanaríeyjur, um eitt þúsund km frá Portúgal. Leikurinn gegn Madeira er síðan kl. 20.30 um á miðvikudagskvöldið.

Föstudagurinn er síðan stífur ferðadagur, því morgunverður er planaður kl. 05.30. Flogið er til Porto, og þaðan til London þar sem menn hafa nokkra tíma til að kíkja í bæinn. Um kvöldið er haldið heim á leið og lent á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir miðnætti. Ekki fá strákarnir þó strax hvíld eftir ferðalagið, því síðasti deildarleikurinn fyrir jól er svo á sunnudaginn, 21. des, þegar Haukarnir koma í heimsókn á Sunnubrautina.

Fararstjóri í þessari ferð er Birgir Már Bragason, stjórnarmaður, en auk hans ferðast með liðinu 12 leikmenn (allir í hópnum nema Hjörtur), stjórnarmaðurinn Einar Skaftason, formaður og framkvæmdastjóri Keflavíkur Einar Haraldsson og sjúkraþjálfarinn Falur Helgi Daðason. Fulltrúi heimasíðunnar verður við tölvuna heima á Íslandi og mun leitast við að flytja fréttir af gangi mála.

Góða ferð piltar og gangi ykkur vel!