Strákarnir halda til Frakklands á miðvikudagsmorgun
Annar leikur Keflavíkur í Bikarkeppni Evrópu er á fimmtudaginn kl. 20. Leikið er gegn franska liðinu Hyeres Toulon VAR í borginni Toulon á frönsku rívíerunni á suðurströnd Frakklands. Keflavíkurdrengir leggja í hann á miðvikudagsmorgun með Flugleiðum til London Heathrow. Þaðan er farið með rútu til Gatwick flugvallar og flogið til Marseilles sem er í um 60 km fjarlægð frá Toulon. Eftir um 90 mínútna rútuferð er komið á hótelið í Toulon um kl. 20 um kvöldið. Líklega verða menn aðeins slæptir eftir dags ferðalag. Um kl. 11 á fummtudagsmorgun verður létt skotæfing og eftir hvíld um daginn hefst leikurinn síðan kl. 20 um kvöldið í Espace 3000 höllinni í Toulon. Snemma á föstudagsmorguninn verður síðan aftur haldið til London þar sem liðið dvelur fram á kvöld, því flugið heim til Keflavíkur er um kl. 21. Heimkoman er áætluð rétt fyrir miðnætti föstudagsins.
12 leikmenn fara í ferðina, auk þjálfara, fararstjóra og þriggja stjórnarmanna. Menn hlakkar til ferðarinnar, ekki síst eftir góðan árangur í fyrsta leiknum. Toulon tapaði sínum fyrsta leik í Evrópukeppninni og þeir töpuðu síðan aftur í deildinni nú um helgina á útivelli hegn Reims 83-91. Þeir hafa því tapað tveimur leikjum í röð og vilja eflaust hysja upp um sig brækurnar í leik gegn áhugamannaliði frá litla Íslandi. En okkar menn eru fullir sjálfstrausts, ekki síst þar sem portúgalskt lið hefur þegar lagt þá, en við lögðum jú besta portúgalska liðið á dögunum, eins og menn muna.
Það má því ætla að einhverjir möguleikar séu fyrir hendi, þó vissulega verði Frakkarnir að teljast sigurstranglegri, þó ekki nema vegna þess að þeir eru atvinnumannalið sem getur á einni leiktíð eytt meiri peningum en við á 15 árum! En við sjáum til . . . .
Ef menn komast í netsamband í Frakklandi munum við að sjálfsögðu leyfa áhugasömum stuðningsmönnum að fylgjast með.