Fréttir

Körfubolti | 15. desember 2003

Strákarnir í góðu yfirlæti í Ovar

Rétt í þessu ræddi vefstjóri við Birgi Má Bragason, fararstjóra, sem staddur er í Ovar með sínum mönnum. Birgir sagði allt hafa gengið vel þótt örlitlar tafir hafi orðið á fluginu. Veðrið er flott og Birgir var að bíða eftir aðalréttinum þegar Heimasíðan ræddi við hann. Honum leist vel á matinn sem og á hótelið og allar aðstæður. Reyndar sagði Birgir að íþróttahúsið væri frekar gamaldags og að það minnti einna helst á gamla flugvélaskemmu sem hefði verið parkettlögð, en leikmenn voru einmitt nýkomnir af æfingu. Leikmennirnir voru samt ekki ósáttir við húsið og fannst það fínt. Birgir sagði að leikmenn væru orðnir frekar þreyttir eftir langan dag, en að góð stemming væri í hópnum. Falur er reyndar aumur í hnénu, hann lét "tappa vel af því" fyrir örfáum dögum (alls um 60 ml.), en hann harkar af sér sá ungi. Á morgun er létt æfing í hádeginu og síðan hefst úrslitaleikurinn kl. 21.00. Heimasíðan mun reyna að flytja fréttir af leiknum ef stjórnarmenn á staðnum verða duglegir að sms-a tölur.