Streetball-keppni á laugardag kl.13.00
Streetball-keppni verður haldin á Holtaskólavellinum á laugardag kl.13.00. Völlurinn er við hliðina á Toyotahöllinni og mjög mikið notaður enda sá glæsilegasti á landinu. Nokkur svona götukörfuboltamót verða haldin á vellinum í sumar og á Ljósanótt verður haldið stórt og glæsilegt mót á vellinum.
Allir eru velkomnir á mótið og aðgangur er ókeypis.
