Stuð á áhorfendum og nýtt Keflavíkurlag kynnt til sögunnar
Leikmenn Keflavíkur fengu mesta töffara síðustu aldar, Rúnna Júl, í lið með sér á laugardaginn og tóku upp nýtt Keflavíkurlag. Sigurður þjálfari samdi nýjan texta við írska lagið “Whiskey in the Jar” sem betur er þekkt á Íslandi sem “Lífið er lotterí” í flutningi Papanna. Textanum var dreift til áhorfenda fyrir leikinn og sungu þeir með af krafti þegar lagið var leikið. Hljómsveitin “Rúnni Júl og Keflavíkurhraðlestin” flutti lagið sem á vonandi eftir að heyrast nokkuð oft í framtíðinni. Nú eru stuðningsmannalögin orðin tvö, því eftir sem áður verður “Suðurnesjamenn” einnig notað til að kynda undir stemmingunni.
Áhorfendur voru fjölmargir í gær, tæplega 900, og hafa ekki verið fleiri í vetur, enda tilefnið ærið. Vel heyrðist í Keflvíkingum enda fengu þeir flugeldasýningu að hætti Sláturhússins sem þeir voru afskaplega ánægðir með.