Stuðningsmaður hvað er það?
Stuðningsmenn.
Undirritaður fylgist mikið með íþróttum, og þá alltaf sem stuðningsmaður en aldrei sem leikmaður, enda hefur aldrei vottað fyrir íþróttahæfileikum á þessum bænum.
Hörðustu stuðningsmenn eru í flestum tilfellum fólk sem hefur ekkert getað í íþróttum og skilningur á leiknum takmarkast af því að hafa bara séð leikinn úr stúkunni. Við í Keflavík höfum átt í mestum samskiptum við stuðningsmenn Njarðvíkur sem hefur verið okkur frábær reynsla enda lið Njarðvíkur eitt sigursælasta lið landsins. Njarðvík drottnaði yfir íslenskum körfubolta á milli 1980-1990. Síðan hafa þessi lið skipt því bróðurlega á milli sín að vera íslandsmeistarar. Sigur í hverri rimmu hefur snúist um það að eiga "
Undanfarið hefur verið mikil umræða um stuðningsmenn Keflavíkur á netinu á hinum ýmsu spjallsíðum internetsins. Þar er ýmislegt talið upp. T.d. leiðinlegustu stuðningsmennirnir, hrokafyllstu, og fleira. Það hefur alltaf verið þannig að sigursælasta liðinu er talið allt til foráttu. Þeir eru grófastir, dónalegastir, og leiðinlegastir. Liðin í neðstu sætunum fá aldrei þennan stimpil, enda tekur því ekkert að hatast útí þá sem geta ekkert. Það þekkja allir að það er alltaf besti leikmaður andstæðingina sem menn hata mest. Það tekur því ekki að hata níunda og tíunda leikmanninn sem koma ekkert við sögu. Einhverjir mest óþolandi leikmenn sem Keflavík hefur mætt hafa verið Gummi Braga (UMFG), Teitur Örlygs (UMFN), Hlynur Bærings (Snæfell), Páll Kolbeins (KR), svo ég nefni nokkra. Ekki því þessir menn voru körfuknattleiksmenn með annarlegar þarfir, heldur vegna þess að þeir voru ROSA-lega góðir. Illviðráðanlegir og fóru oft illa með okkur. Umræðan hefur undanfarið verið mest á þá vegu að stuðningur Keflvíkinga hafi kannski verið of mikill og það helst verið túlkað sem hroki. Ég auglýsi eftir því liði sem finnst stuðningur við sig vera of mikill.
Stuðningsmenn eru allstaðar eins. Já það getur verið sjokkerandi en það er staðreynd. Stuðningsmenn hvaða íþróttagreinar sem er eru eins.
- Stuðningsmenn vilja sjá sitt lið vinna.
- Stuðningsmenn sjá aldrei eitthvað slæmt við sitt lið
- Stuðningsmenn sjá sjaldnast þegar þeirra lið brýtur
- Stuðningsmönum finnst sitt lið alltaf best.
Svona er þetta allsstaðar, við þekkjum það hér í Keflavík og Njarðvík. Hvorugir stuðningsmannana hafa einhverjar annarlegar hvatir og alltaf finnast svartir sauðir inná milli. Það má aldrei dæma alla útfrá svörtum sauðum.
Eigum við að dæma alla stuðninsmenn liðana útaf því að:
- Stuðningsmaður Snæfells henti kjuðum inná völlinn í Keflavík (nú í ár)
- Stuðningsmaður ÍR óð inná völlinni og veittist að leikmanni (fyrir nokkrum árum, eiginkona leikmanns)
- Stuðningsmaður Njarðvíkur braut glas í andliti leikmanns Keflavíkur (dómsmál).
Svona gæti ég lengi talið.
Grindavík, Keflavík, Njarðvík, Snæfell, og ÍR hafa fengið hótarnir og vitleysu í GSM símana sína, og eflaust öll önnur lið í deildinni. Þetta er fylgifiskur tækni og óþroskaðra einstaklina.
Það er alltaf þannig að sigursælast lið hvers tíma er það lið sem velta þarf af stalli. Lið ÍR á ótrúlega sigursæla sögu í rúm 20 ár, og var ekki alltaf vinsælasta liðið á þeim tíma. Lið Njarðvíkur drottnaði yfir íslenskum körfubolta í rúm 10 ár og var ekki vinsælasta liðið á meðan. Nú í fyrsta sinn í 20 ár á lið möguleika að vinna þrjú ár í röð og eðlilega er það ekki vinsælasta liðið á meðan.
Það má ætla að lið ÍR hafi fengið nokkurt kúltúrsjokk að hafa komist í úrslit, enda allt önnur kynslóð sem fylgist með þessum úrslitum en gerði þegar ÍR var síðst að berjast í úrslitum. Það hefur verið lítið fjallað um það að í raun tapaði lið ÍR síðustu tveim leikjum nokkuð stórt, og það er nú einusinni þannig að leikmennirnir inná vellinum eru ábyrgir fyrir lokaniðurstöðunni. Það er að vísu mjög margt sem spilar þar inní eins og þjálfun og hvatning stuðningsmanna. Ef ÍR mun slá út Keflavík munum við án efa telja þá dónalegasta, grófasta og leiðinlegasta liðið, því það er eðlilegt að agnúast útí þá sem eru betri. Njarðvíkingar sem þekkja úrslitakeppnina eins vel og við ef ekki betur hafa skemmt sér konunglega yfir umræðum undanfarna daga. Eflaust er það bara best að þessi lið spili til úrslita ár eftir ár, því þessi lið vita best hvernig stemmingin magnast bæði á vellinum og í stúkunni þegar í alvöruna er komið.
Ég er að vísu sannfærður um það að Keflavík vinnur, enda stuðningsmaður þeirra. Þau orð má eflaust túlka sem dónaleg, gróf og leiðinleg. Ég vill jafnframt skora á ÍR að koma grimmir til leiks til þess að við fáum skemmtilegan lokaleik í undanúrslitum (kannski tvo leiki, en ég er Keflvíkingur og því hlutdrægur). Ég vona að ÍR og Fjölnir læri af þessum leikjum og komi öflugir til leiks á næsta ári, körfuboltanum til framdráttar. Undirniðri mun ég samt óska þess að við mætum Njarðvík í úrslitum næsta árs.
Áfram Keflavík.
Tímavörðurinn
Ath. skoðanir Tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.