Fréttir

Körfubolti | 1. nóvember 2004

Stuðningsmannaklúbbur Keflavíkur

Hjá Keflavík hefur verið rekinn stuðningsmannaklúbbur í mörg ár.  Aðsókn í klúbbinn hefur alltaf verið mjög góð og sumir verið með frá upphafi. Það eru margir kostir við að vera í klúbbnum. Fyrst ber að nefna að maður er alltaf með sama sætið, því öll sæti eru númeruð.  Svo er veglegar veitingar í hálfleik, þú situr nær vellinum og kemst því  í meira návígi við leikinn og leikmenn. Félagasskapurinn er líka stór plús, því í klúbbnum er fólk á öllum aldri  sem hefur sameigilegt að hafa mikinn áhuga á körfubolta. Svo eru ýmsar uppákomur yfir tímabilið. Verð í klúbbinn er 2500 fyrir einstakling, 3000 fyrir einstakling og eitt barn yngri en 16 ára og 3500 fyrir hjón. Meðlimir fá kort sem er merk þeim og númer á sæti sem þeir hafa yfir tímabilið.  Inngangur í stuðningsmannabekkina er í suðurenda ( nær FS. )  Kortið gildir m.a á alla leiki Keflavíkur í Evrópukeppninni. Og verða allir meðlimir að mæta með kortið og sýna það við innganginn.  Þetta á sérstaklega við Evrópukeppnina. Í klúbbinn þetta árið eru örfá sæti laus og nú er ráð fyrir þig, ef þú hefur áhuga á þessu að tala sem fyrst við Birgir Bragasson og ská þig í klúbbinn.