Fréttir

Körfubolti | 11. desember 2003

Stuðningsmannasveitin átti STÓRAN þátt í sigrinum gegn Frökkunum

Það er gaman fyrir okkur Keflvíkinga að eiga gott körfuboltalið. En það er jafn mikilvægt að eiga góða stuðningsmenn. Og þar fara fremstir í flokki, að öðrum ólöstuðum, meðlimir Stuðningsmannasveitarinnar ógurlegu. Drengirnir, allir miklir Muse-aðdáendur, létu sig ekki vanta á leikinn í kvöld, frekar en endranær. Og þeir fóru á kostum, svo einfalt er það!!

Aðsókn olli vonbrigðum, við skulum ekki dylja það, við áttum von á fleiri Keflvíkingum í húsið í kvöld. En "cest-la-vie" segja Frakkarnir, svona er lífið, maður fær ekki allar sínar óskir uppfylltar. Við vitum að áhuginn á þátttöku Keflavíkur í Evrópukeppninni er afar mikill, en samt sem áður voru of margir (að okkar mati) sem ekki sáu sért fært að mæta á leikinn. Kannski þetta hafi eitthvað að gera með aðventuna og jólin, heimasíðan sá t.d. í sjónvarpinu í kvöld að það sama var uppi á teningnum í handboltanum þar sem Haukar mættu FH í stórleik. Vaninn er að fullt sé á slíkum leik, en nú var húsið ekki einu sinni hálft. Kannski fólk vilji eyða aðventunni í annað en sport, maður veit ekki. Samt eru þetta vonbrigði, því þetta er ekki bara spurning um stemmningu, heldur líka um tekjur. Nú vantar pening til að klára dæmið, en vonandi gengur þetta upp, við vitum af áhuganum, þurfum bara að breyta honum í peninga . . . .

En stuðningsmannasveitin stóð fyrir sínu. Miðað við að marga áhorfendur vantaði var stemmingin frábær. Og það er algerlega Stuðningsmannasveitinni að þakka. Þeir börðu húðir og hvöttu okkar menn til dáða, allan leikinn. Þið standið ykkur vel drengir og eigið stóran þátt í okkar frábæra árangri á heimavelli!