Fréttir

Körfubolti | 13. nóvember 2002

Stuðningsmenn koma saman fyrir Grindavíkurleikinn

Í annað skiptið í vetur munu stuðningsmenn Keflavíkurliðsins koma saman fyrir heimaleik. Nú er tilefnið ærið enda toppslagur tveggja Suðurnesjaliða í vændum. Vinir okkar úr Grindavík koma til Keflavíkur á föstudaginn og baráttan hefst kl. 19.15 á parkettinu að Sunnubraut.

Við höfum ekki enn unnið Grindavík á þessari leiktíð, þrátt fyrir tvær tilraunir í æfingamótum í haust. Þeir unnu okkur bæði í Valsmótinu og Reykjanesmótinu. Mál er að linni!

Stuðningsmenn eru boðnir í spjall og léttar veitingar í nýja K-félagsheimilið okkar að Hringbrautinni kl. 18 fyrir leikinn á föstudaginn. Hægt verður að ræða við þjálfara og vonandi verður einhver leikmaður á staðnum (einhver sem kemst ekki í liðið).

Sjáumst þá!