Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 21. janúar 2011

Stúlknaflokkur áfram í bikarnum

Stúlknaflokkur lék s.l. þriðjudagskvöld á útivelli í 8 liða úrlitum bikarkeppninnar gegn liði Breiðabliks í Smáranum.  Skemmst er frá því að segja aldrei var spurning hvort liðið færi með sigur að hólmi og unnu stelpurnar öruggan sigur, en lokatölur urðu 89-41 (38-18 í hálfleik).

Stigaskor Keflavíkur:

Telma Lind 14 , Ingunn Embla 12, Lovísa 12, Anita Eva 11, Árný Sif  9, Soffía Rún  7, Eva Rós G  6, Sigrún 6, Sara Rún  6, Sandra Lind  4, Jenný María 2, Katrín Fríða 0

Stúlknaflokkur leikur nú um helgina í 3. umferð Íslandsmótsins og fer mótið fram í Njarðvík. Leikir helgarinnar hjá Keflavík;

Laugardagur

kl. 9.30     Keflavík - Njarðvík

kl. 12.00   Keflavík - Grindavík

Sunnudagur

kl. 13.15   Keflavík - Valur

kl. 15.45   Keflavík - Haukar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Telma Lind var stigahæst gegn Breiðablik