Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2002

Stúlkunar í góðum málum í Kjörísnum

Fyrri leikur Keflavíkurstúlkna gegn Haukum í 8 liða úrslitum Kjörískeppninnar var eign heimamanna frá upphafi. Leikurinn var vel leikinn af stelpunum og lét Birna Valgarðsdóttir verulega að sér kveða.

Þegar upp var staðið var sigurinn tæp 30 stig og telja má ólíklegt að Haukastúlkur nái að jafna málin í seinni leiknum sem leikinn verður á miðvikudaginn.

Stelpurnar hennar Önnu Maríu hafa leikið af miklum krafti í haustleikjunum og hefur liðið sýnt miklar framfarir frá því í fyrra, þrátt fyrir litlar breytingar á mannskap. Taka verður þó fram að endurkoma Marínar hefur haft mjög jákvæð áhrif. Bæði er hún prýðilegur leikstjórnandi sem og öflug 3ja stiga skytta eins og hún sýndi í leiknum gegn KR á dögunum.