Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2003

Stúlkurnar leika í Grindavík á morgun, laugardag

Eftir risjótta byrjun náðu Keflavíkurkonur góðum leik fyrir rúmri viku gegn Njarðvík. Sem stendur er Keflavík í 2.-3. sæti í deildinni ásamt Njarðvík, en á eftir ÍS. Grindavík hefur ekki heldur vegnað sem best og verma þær botnsæti deildarinnar með einn sigur. Grindavík komst í hann krappann í Hópbílabikarnum gegn ÍR í 8 liða úrslitunum en komst áfram eftir góðan heimasigur í gærkveldi. Keflavík sat hins vegar hjá í 8 liða umferðinni og mun mæta ÍS í undanúrslitunum í Hópbílabikarnum.

En leikurinn á morgun er mikilvægur fyrir okkar stúlkur. Þær "fundu taktinn" í Njarðvík um daginn og þurfa nú að halda honum. Grindavík hefur ágæta leikmenn innanborðs, sérstaklega þær Sólveigu og Petrúnellu, en Keflavíkurliðið er mun betur skipað og má meðal annars nefna að fimm leikmenn hafa að meðaltali skorað 10 stig eða meira í leik, þær Birna (18), Erla (14), María Ben (11), Kristín (10) og Anna María (10).

Það er aldrei auðvelt að leika í Grindavík, en ef okkar stúlkur eru rétt innstilltar ættu þær að geta landað sigri á morgun.