Fréttir

Körfubolti | 10. september 2003

Stúlkurnar sigruðu á Hraðmóti ÍR

Líkt og drengirnir unnu Keflavíkurkonur sigur á fyrsta æfingamóti haustsins. Þær unnu Hauka, ÍR og Grindavík á mjög sannfærandi hátt á Hraðmóti ÍR um síðustu helgi og voru áberandi sterkasta liðið. Þær Birna, Erla Þorsteindóttir og María Ben Erlingsdóttir voru allar valdar í úrvalslið mótsins. Sérlega gaman að sjá til Maríu, en hún er eingöngu 15 ára og er að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki. Guðjón Skúlason þjálfari var sáttur með leikina en sagði jafnframt að liðið væri eingöngu skammt á veg komið. Næst á dagskrá hjá dömunum er, líkt og hjá strákunum, Reykjanesmótið, en það hefst hugsanlega í þessari viku.