Fréttir

Körfubolti | 21. nóvember 2002

Stúlkurnar taka á móti Njarðvík í kvöld

Það er ekki ofsögum sagt að Keflavíkurdömur hafa komið á óvart það sem af er þessari leiktíð. Vissulega var þeim spáð velgengni, en engan óraði fyrir því að þær myndu sigla taplausar í gegnum fyrstu leikina líkt og þær hafa gert. Þær hafa tekið miklum framförum frá því í vor og standa nú vel að vígi í efsta sæti deildarinnar.

Í kvöld koma grannar vorir úr Njarðvík í heimsókn, en Njarðvíkurstúlkur hafa sótt í sig veðrið á undanförunum árum og hafa nú á að skipa prýðilegu liði, þótt ungt sé að árum. Þær hófu leikinn af krafti í haust og réðu til sín Kana. Sú uppfyllti reyndar ekki væntingar þær sem til hennar voru gerðar og ákváðu Njarðvíkingar þá að slíta samstarfinu. Ekki hefur enn komið í ljós hvort skarð hennar verður fyllt, en sem stendur leika þær án erlends leikmanns.

Okkar stúlkur tjalda nú fullskipuðu liði eftir að Sonia Ortega bættist í hópinn og Erla Þorsteinsdóttir sneri aftur eftir hnémeiðsli. Við vonumst þvi eftir góðri frammistöðu í kvöld, og telja verður okkar stúlkur sigurstranglegar ef marka má það sem á undan er gengið.

Áhorfendur ættu að kíkja við á Sunnubrautina í kvöld, því nágrannaslagur er ávallt skemmtilegur, auk þess sem stúlkurnar spila gríðarskemmtilegan bolta um þessar mundir og hafa reglulega náð að skora yfir 70 stig sem telst mjög gott í kvennaboltanum.