Stúlkurnar töpuðu gegn Grindavík í arfaslökum leik
Það var ekki áferðafallegur körfuknattleikur sem var leikinn í Röstinni í Grindavík í kvöld. Mikið var um mistök og lítið um hraðan bolta. Allt snerist um Keshu Tardy sem á endanum var ofjarl Keflvíkinga, en hún gerði 31 stig af 65 og hirti 20 fráköst af 42. Svæðisvörnin sem hafði virkað svo vel í fyrsta leiknum gekki ekki upp í þetta skiptið, eins og sjá má af tölum Tardy, en þó var það fyrst og fremst sóknarleikurinn sem brást hjá Keflavík.
Grindavík tók frumkvæðið í leiknum og leiddi mest allan tíman, allt þar til Keflavík komst yfir í stöðunni 50-51 í 3ja leikhluta, m.a. eftir tvo þrista frá Marínu. En í kjölfarið fylgdi slakur kafli og Grindavík náði 10 stiga forskoti, 61-51 og stutt eftir. En þá fór Keflavík loks að leika eins og maður vill sjá þær. Þær hættu í svæðisvörninni og pressuðu allan völlinn og keyrðu upp hraðan. Eitthvað sem þær mættu gera mikið meira af. Erla Reynisdóttir sótti grimmt að körfunni hraðinn óx. Þegar um 40 sek. lifðu leiks var foyrsta Grindavíkur komin niður í eitt stig, 63-62 og heimamenn með knöttinn. Skot þeirra geigaði og Keflavík náði frákastinu þegar 18 sek voru eftir. En slæm sending gerði vonir okkar að engu og brotið var á Tardy sem setti niður tvö víti í lokin.
Leikurinn í heild var slakur og Keflavíkurliðið nær óþekkjanlegt, því allan hraða og áræðni vantaði í liðið. Okkar stúlkur geta verið mun aggressívari og gætu örugglega pressað meira og reynt að hleypa leiknum upp, því hægur leikur hentar Grindavík betur sökum stærðar Tardy.
Erla Þosteins var dugleg í leiknum (11 stig, 11 fráköst) en lánlítil með skot sín. Annars áttu flestar þokkalega spretti inn á milli, en enginn náði verulega að blómstra í þessum leik. En nú er bara fyrir stúlkurnar að herða upp hugann og mæta grimmar til leiks á föstudaginn, en þá fer fram oddaleikur í íþróttahúsinu við Sunnubraut.