Stúlkurnar vinna enn einn stórsigurinn, nú gegn Haukum
Keflavíkurhraðlestinn er skipuð kvenmönnum um þessar mundir. Ekkert lát virðist vera á góðum körfubolta hjá stelpunum og unnu þær enn einn stórsigurinn í gær, nú gegn Haukum, 78-45.
Leikurinn var jafn í fyrsta leikhluta, en síðan fór vörnin að herðast og hraðinn að aukast. Ekki tók það langan tíma að auka forystuna og síðasti leikhlutinn var algerlega eign okkar stúlkna, þær gerðu 27 stig gegn 8 stigum heimakvenna. Birna var stigahæst með 17 stig, en þær Sonia (12), Rannveig (10) og Kristín (10) gerðu allar meira en 10 stig.
Allar stelpurnar fengu mikið að leika og settu mark sitt á leikinn. Liðið er í feyknaformi um þessar mundir og hefur nú 8 stiga forystu í deildinni. Á næstunni tekur síðan við skemmtilegt verkefni, Kjörísbikarinn, en þar mætum við ÍS í undanúrslitunum á miðvikudaginn í Kennaraháskólanum, en ÍS-stúlkur unnu sinn fyrsta sigur í gær þegar þær lögðu KR-inga að velli.
Sjá tölur úr leiknum