Stund karlmennskunnar er runnin upp - KEFLAVÍK-KR # 3
Stærsta körfuboltastund ársins til þessa er runninn upp fyrir okkur stuðningsmenn Keflvíkur þennan veturinn. Nú reynir á okkar ágæta lið sem stendur með bakið upp að bjálkanum, búnir að tapa fyrstu tveimur viðureignunum við VesturbæjarSebrana og útlitið orðið heldur dekkra en oftast áður. Það er aðeins ein leið út úr ógöngunum í kvöld
# S I G U R
Það reynir þó á fleira en okkar frábæra lið sem ætlar sér eflaust að ná settu marki í kvöld og trekkja okkur ínn leikinn sem við viljum sjá og þeir kunna að leika.
Það verður lykilatriði að allir dyggir áhangendur KEFLAVÍKUR sjái sóma sinn á þessum drottins degi & MÆTI mega FERSKIR, GLAÐIR & GÓÐR, gefi sitt besta klapp, & ennþá meira klapp í FAGUR blárri KEFLAVÍKURFLÍK.
Gefum blóð í baráttuna sem bíður handan við hornið, bræður & systur, gefum Keflavíkurstrauma í Vesturbæjarskemmuna í kvöld. Gefum öllum Röggum klapp og stöndum með okkar mönnum út í eitt.
ÆTLUM VIÐ að taka eina DHL ""slemmu "eða hvað ?
VIÐ trúum því, ekki satt.............VIÐ TRÚUM, TRÚUM, TRÚUM & ÆTLUM - .
Verður Ísafjarðartröllið tilbúið að taka fjósamenn Sebrana til bæna ? mynd VF