Stutt spjall við Fal um leikinn
Ég bara trúði ekki mínum eigin augum, að dómarinn skyldi ekki dæma brot. Varnarmaðurinn var of seinn í Derrick og keyrði undir hann með þeim afleiðingum að hann missti allt vald á skotinu og datt í gólfið. Brotið var ekki bara augljóst, heldur var það líka gróft. Hrikalega svekkjandi. Sagði Falur þjálfari eftir leikinn.
Annars vorum við ekki nógu skynsamir í lokin, því við hefðum átt að vinna leikinn, vorum 6 stigum yfir og spiluðum ekki af skynsemi, tókum ótímabær skot og létum þá jafna.
Nick átti stórleik, skoraði 38 stig, Derrick gerði 28 og Jonni 17. Gunni Einars bætti við 11, Arnar Freyr 8 og Maggi 5.
Það reyndist okkur dýrt að geta ekki notað okkar reyndu leikstjórnendur, Fal eða Hjört, á ögurstundu.