Fréttir

Körfubolti | 7. desember 2004

Stutt yfirlit um leikinn

Keflavík mætti í kvöld Bakken Bears í Árósum í Danmörku. Mikið var um mistök á báða bóga í byrjun leiks og tók nokkurn  tíma  fyrir bæði lið að  ná úr sér mestu spennunni.  Enda leikurinn úrslitaleikur um hvort liðið færi með sigur á hólmi úr A riðli. Bakken var þó fljótari að ná sér á strik og komust fljót yfir og staðan 11-3 þegar 4 mín. voru liðnar af leiknum. Keflavík náði að laga stöðuna fyrir lok 1 leikhluta 23 - 20. Annar leikhluti byrjaði vel og Keflavík komst yfir 30 - 31, síðan komu 9 stig í röð hjá Bakken og tæknivilla dæmt á Keflavík. Hlutirnir ekki að ganga og Chris Christofferson kominn með 17 stig og Nick og Tony að fá sínar 3 villur. Staðan í hálfleik 56 - 44, Tony með 12 stig og Maggi með 11. Seinni hálfleikur byrjaði hræðilega og Bakken náði fljótlega 20 stiga forskoti. Nick náði sér fljótlega í 4 villuna og staðan ekki góð. Lokastaðan 104- 90.

Nú er bara að safna kröftum fyrir næsta leik á fimmtudaginn á móti Madeira.  Strákarnir fara snemma í háttinn og leggja svo af stað til Portugal upp úr hádegi á morgun.

Nú er í gangi leikur Madeira og Reims og mun heimasíðan birta úrslit í þeim leik um leið og þau berast.  Meiri fréttir að þessum leik og ferðalagi Keflavíkur kemur svo síðar.

 

Keflavík að hita upp fyrir leik í Danmörku

Hér er hluti að Stuðningsmönnum Keflavíkur á leiknum.

Biggi tilbúinn að senda sms heim á heimasíðu Keflavíkur