Styttist í fyrsta heimaleik karlaliðsins - Minnum á reglur varðandi Hraðlestina
Nú fer óðum að styttast í fyrsta heimaleik Keflavíkur í Domino´s deild karla en Keflvíkingar mæta KFÍ í TM-Höllinni föstudaginn 18. október. Líkt og áður hefur verið vikið að hefur stuðningsmönnum í Hraðlestinni fjölgað umtalsvert undanfarið og er svo komið að nánast uppselt er orðið í númeruðu sætin í neðri stúlku í TM-Höllinni.
Að því tilefni vill stjórn körfuknattleiksdeild Keflavíkur (KKDK) koma því áleiðis til allra stuðningsmanna, leikmanna, fyrrum leikmanna og styrktaraðila að frá og með fyrsta leik í Domino´s deild karla munu aðeins þeir sem hafa "hraðlestarkort" hafa aðgang í sæti í neðri stúku TM-Hallarinnar á leikjum karlaliðsins. Þá er þeim sem hafa "hraðlestarkort" einnig bent á að hvert kort gildir aðeins fyrir einn og er fólki með börn því bent á að láta börnin sín sitja í efri stúku. Á þetta við hvort sem fullt er í þá stúku eður ei enda ljóst að þeir sem "eiga" númeruð sæti þetta tímabil og hafa greitt sérstaklega fyrir það vilja ganga að þeim sætum vísum, hvort sem þeir mæta fimm mínútum fyrir leik eða í hálfleik.
Er það von stjórnar KKDK að allir sýni þessu skilning og taki þessu fagnandi. Jafnt skal yfir alla ganga svo sátt geti ríkt um sívaxandi stuðningsmannaklúbb! Enn eru einhver sæti í Hraðlestina laus og því um að gera að næla sér í sæti sé áhugi fyrir því að sitja í neðri stúku. Sjá nánar hér