Fréttir

Körfubolti | 9. janúar 2003

Styttist í stórleikinn!

Eftir að hafa verið teknir í bakaríið á þriðjudaginn eru keflvískir körfuboltadrengir brjálaðir úr bræði og ætla að sýna sitt rétta andlit í leiknum á morgun. Leikurinn skiptir öllu máli því liðið sem tapar er úr leik, en liðið sem sigrar á mikla möguleika að verða Bikarmeistari, enda munu 3 af 4 efstu liðum deildarinnar vera úr leik þegar undanúrslitin hefjast.

Engum dylst að Keflavík getur leikið mun betur en liðið gerði á þriðjudaginn, en eflaust geta Njarðvíkingar það líka. Það verður að hrósa Njarðvíkingum fyrir vel útfærðan varnarleik, þar sem þeir náðu að hægja vel á Keflavíkurliðinu og stoppuðu allar keyrslur inn í teiginn. Friðrik Stefáns var erfiður ljár í þúfu og verða Keflvíkingar að sýna meira hugprýði í baráttunni við hann ef betur á að fara.

Teitur mun eflaust leika af alkunnri keppnishörku enda sýndi hann í síðasta leik að honum er fráleitt farið að förlast þegar stórleikir eru annars vegar. Hann skoraði mikilvægar körfur og slökkti í Damon í seinni hálfleik. Við þykjumst þó vita að Damon eigi töluvert inni, jafnvel þótt hann sé orðinn Íslendingur : )

Okkar menn eiga reyndar allir töluvert inni og það sama má segja um áhorfendur, því þótt margir hafi mætt til leiks á þriðjudaginn, heyrðist ansi lítið í þeim og þykjumst við vita að þar getum við gert betur.

En nú er gaman! Alvöru úrslitaleikur í körfubolta milli Keflavíkur og Njarðvíkur þar sem vart má á milli sjá hvort liðið er betra. Keflavík hefur líklega betri mannskap, en Njarðvík nær betur að nýta liðsheildina. Þetta er ALVÖRU!