Sumaræfingar 2019
Þá er æfingatafla sumarsins tilbúin fyrir iðkendur frá leikskólaaldri til árgangs 2006. Fyrsta æfing á sumarnámskeiðinu fyrir árganga 2006-2011 er miðvikudaginn 5 júní en árgangar 2012-2013 hefja námskeiðið þriðjudaginn 11 júní. Æft er í júní og júlí sjá nánar á meðfylgjandi töflu.
Skráning og greiðsla fyrir námskeiðið fer fram á staðnum en æft er í Íþróttahúsinu við Sunnubraut.
Við leggjum upp með góðar æfingar með frábærum þjálfurum sem mun gefa iðkendum tækifæri á að bæta sinn leik á ýmsan hátt. Við bjóðum við alla velkomna til leiks og sérstaklega nýja iðkendur sem vilja prufa að æfa körfubolta. Athugið að þetta er eitt tímabil en ekki skipt upp eftir mánuðum.
Þjálfarar á námskeiðinu eru ma Kolbeinn Skagfjörð, Þröstur Leó Jóhannsson og fleirri.
Verð fyrir tímabilið og skiptingu aldursflokka má sjá á meðfylgjandi töflu.
Smellið HÉR! til að sjá töfluna.