Sumaræfingar í körfu - Æfingatafla
Sumaræfingar á vegum Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hófust í vikunni með afreksæfingum fyrir 8.-10.bekk. N.k. mánudag, 13. júní hefjast æfingar fyrir 3.-7. bekk.
18-21. júlí og 24.-31. ágúst mun deildin síðan bjóða öllum í 1. og 2. bekk í körfuboltaskóla sem mun bara verða skemmtilegur.
Sumaræfingarnar eru frábær valkostur fyrir þá sem vilja taka framförum í sumar og kjörið tækifæri fyrir nýja iðkendur að prófa skemmtilegustu íþrótt í heimi.
Allar æfingar Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur eru jafnt fyrir drengi sem stúlkur.
8.-10.bekkur:
- Afreksæfingar mán-fimmtudaga frá kl. 9.00-11.15, allir velkomnir.
- Frítt er á æfingarnar og þjálfari er Einar Einarsson.
3.-7.bekkur:
- Æft verður í tveimur hópum, „3.-4. bekkur“ og „5.-7.bekkur“
- Æft verður í 6 vikur í 3x í viku, mánudag, þriðjudag og fimmtudag.
- Æfingagjald fyrir tímabilið verður 5.000 kr.
- Nokkrir þjálfarar koma að æfingunum og má sjá umsjónarmenn í æfingatöflu.
1.-2.bekkur:
- Körfuboltaskóli sem verður nánar auglýstur síðar.
- Frítt verður á æfingarnar og ýmsir þjálfarar koma við sögu.
ÆFINGATÖFLU SUMARÆFINGANNA MÁ SJÁ HÉR
Barna- og unglingaráð KKDK