Fréttir

Körfubolti | 6. október 2005

Sumy frá Úkraínu dregur sig úr keppni

Sumihimprom Sumy frá Úkraínu var rétt í þessu að draga sig úr keppni í Eurocup Challange.  Sumy var með okkur í riðli og  NMKY Lappeennranta frá Finnlandi. Ástæðan mun líklega vera fjárhagsleg.  Forráðamenn liðsins höfðu verið í sambandi við okkur um að leika báða leikina í Úkraínu, og svöruðu við því með tilboði á móti sem þeir höfnuðu. Það er því ljóst að Keflavíkurliðið mun ekki fara til Úkraínu í ár og kannski átti ferðakostnaðurinn til Íslands þátt í því.

Í staðin fyrir Sumy kemur inn í okkar riðil lið sem heitir BK Riga og er frá samnefndri borg. BK Riga er eingöngu skipað heimamönnum fyrir udan Bandaríkjamanninn Billups Rodney sem er leikstjórnandi liðsins. Liðið virðist vera frekar hávaxið með 6-7 leikmenn sem eru um 200 cm. Hæsti leikmaður liðsins er landsliðsmaðurinn Berzins Kaspars sem er 213 cm. Við reynum að fræða ykkur meira um liðið þegar nær dregur leik, en við spilum við þá úti 28 okt.   

 

View of city and Daugava River from spire of St Peter's Church, Riga

Höfuðborgin Riga