Fréttir

Körfubolti | 21. september 2005

Sverrir spilar með Keflavík í vetur

Sverrir Þór Sverrisson hefur ákveðið að leika áfram með liði meistaraflokks Kelfavíkur, en Sverrir er sem kunnugt þjálfari meistaraflokks kvenna. Sverrir er að mörgum talinn besti varnarmaður deildarinnar og frábær leikstjórnandi, svo það er sannalega mikill styrkur að hafa hann áfram. Leikmannahópur Keflvíkur er því orðinn mjög sterkur og breiður, enda veitir ekki af þar sem leikjaálag er mikið. Frá 13. okt. til áramóta spilum við 11. leiki í deild, 3 til 8 bikarleiki og 4. Evrópuleiki. Samtals 18-23 leiki.

Keflavík spilar við Stjörnuna í Reykjanesmótinu í kvöld kl. 19.30. Leikurinn fer fram í Mýrinni við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.

Sverrir átti frábæra leiki á móti ÍR í úrslitakeppninni.

Leikmannahópur Keflavíkur er þannig skipaður árið 2005-2006.   

Arnar Freyr Jónsson   22 ára  bakvörður/leikstjórnadi

Davíð Þór Jónsson  24 ára  bakvörður/leikstjórnadi

Gunnar Einarsson 28 ára bakvörður/framherji

Gunnar Stéfansson  26 ára bakvörður

Elentínus Margeirsson  28 ára framherji/bakvörður

Halldór Halldórsson  21 ára framherji/miðherji

Jón Hafsteinsson   24 ára framherji

Jón Gauti Jónsson  20 ára bakvörður

Magnús Þór Gunnarsson  24 bakvörður

Sverrir Þór Sverrisson 30 bakvörður/leikstjórnandi

Þröstur Léo Jóhannsson  17 ára framherji

Zlatko Gocevski  23 ára miðherji

Jason Kalsow  23 ára framherji

Meðalaldur 23.8 ár.

.