Fréttir

Körfubolti | 18. apríl 2004

Sverrir Þór, María Ben, Erla Þ, Birna og Heimasíðan voru verðlaunuð á lokahófi KKÍ

Lokahóf KKÍ var haldið s.l. laugardag á Hótel Sögu. Óhætt er að segja að vel hafi verið mætt úr Keflavík, en milli 50 og 60 Keflvíkingar voru á hófinu. Ekki var þó mæting góð frá öllum félögum en prýðileg stemmning var á staðnum.

Eins og ávallt voru veitt einstaklingsverðlaun á hófinu, þessi voru þau helstu:

  • Lið ársins hjá konum: Hildur (KR), Alda Leif (ÍS), Sólveig (Gri), Birna (Kef) og Erla Þ (Kef)
  • Lið ársins hjá körlum: Lárus (Hamri), Pálmi (Brei), Páll Kr. (Nja), Páll Axel (Gri) og Hlynur (Snæ)
  • Besti ungi leikmaðurinn, konur: María Ben (Kef)
  • Besti ungi leikmaðurinn, karlar: Sævar (Hau)
  • Besti erlendi leikmaðurinn, konur: Katie Wolfe (KR)
  • Besti erlendi leikmaðurinn, karlar: Darryl Lewis (Gri)
  • Besti varnarmaðurinn, konur: Hildur (KR)
  • Besti varnarmaðurinn, karlar: Sverrir Þór (Kef)
  • Besti leikmaðurinn, konur: Hildur (KR)
  • Besti leikmaðurinn, karlar: Páll Axel (Gri)
  • Besti þjálfarinn, konur: Gréta (KR)
  • Besti þjálfarinn, karlar: Bárður (Snæ)

Auk þess var Heimasíða Keflavíkur valin besta heimasíða ársins!

Við viljum óska öllum þessum verðlaunahöfum kærlega til hamingju með sín verðlaun.

Sumum Keflvíkingum finnst að við berum rýran hlut í ljósi þess að við áttum bestu liðin í karla og kvennaflokki. Heimasíðan hvetur menn til að hafa ekki áhyggjur af því, körfubolti er liðsíþrótt og Keflavík sem lið, bæði karla og kvenna, vann öll þau verðlaun sem máli skipta. Það er aðalatriðið.

En bara til gamans ætlar Heimasíðan að tilnefna hér leikmenn ársins (þó heimasíðan sé vissulega ekki hlutlaus):

  • Lið ársins hjá konum: Hildur (KR), Alda Leif (ÍS), Anna María (Kef), Birna (Kef) og Erla Þ (Kef)
  • Lið ársins hjá körlum: Sverrir (Kef), Gunnar E (Kef), Páll Kr. (Nja), Páll Axel (Gri) og Hlynur (Snæ)
  • Besti ungi leikmaðurinn, konur: María Ben (Kef)
  • Besti ungi leikmaðurinn, karlar: Arnar Freyr (Kef)
  • Besti erlendi leikmaðurinn, konur: Tardy (Gri)
  • Besti erlendi leikmaðurinn, karlar: Darryl Lewis (Gri) / Derrick Allen (Kef) (báðir eiga það skilið)
  • Besti varnarmaðurinn, konur: Birna (Kef) 
  • Besti varnarmaðurinn, karlar: Sverrir Þór (Kef)
  • Besti leikmaðurinn, konur: Anna María (Kef)
  • Besti leikmaðurinn, karlar: Páll Axel (Gri)
  • Besti þjálfarinn, karlar: Falur og Guðjón (Kef) - þeir fengu erfiðasta verkefnið af öllum þjálfurum og kláruðu það með ótrúlegum stæl og frábærum árangri

Hér voru aðeins fleir Keflvíkingar, en það eru tvær ástæður fyrir því, sú fyrri að Keflvíkingar unnu jú allt og úrslitakeppnin er með í dæminu, sú seinni að það er jú Keflvíkingur sem velur . . . :)