Sverrir Þór Sverrisson er þjálfari meistaraliðs kvenna hjá Keflavík
Gengið hefur verið frá ráðningu Sverris Þórs Sverrissonar sem þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Keflavík. Sverrir hefur þjálfað yngri flokka um árabil með prýðilegum árangri, auk þess sem hann kynntist þjálfun kvennaliðs s.l. leiktíð þegar hann aðstoðaði hjá Njarðvík. Við bjóðum Sverri velkominn til starfa og væntum þess að eiga gott samstarf við hann. Metnaðurinn er mikill hjá kvennaliðinu, enda eru allir íslenskir kvennabikarar í Sláturhúsinu sem stendur, og markmiðið er að halda þeim þar. Auk þess er stefnt að því að kvennaliðið leiti sér verkefna á erlendri grundu á komandi leiktíð. Auk þjálfunar mun Sverrir einnig leika með meistaraflokki karla í Keflavík á komandi leiktíð.