Fréttir

Körfubolti | 27. nóvember 2005

Tap á Stykkishólmi

Keflavík tapaði í kvöld fyrir Snæfelli 102-87. Leikurinn var frestaður leikur úr annari umferð og jafnframt fyrsti tapleikur okkar í Iceland Express-deildinni í vetur. Tapið kemur mörgum á óvart en Keflavík er við topp deildar en Snæfell í neðri hluta. Liðið hafa mæst tvö síðustu ár í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn og Keflavík unnið í bæði skiptin 3-1. Nokkrar breytingar hafa orðið á Snæfelsliðinu frá síðasta tímabili. Hlynur, Siggi Þorvalds og Pálmi farnir á braut en Jón Ólafur, Igor Beljanski og öflugur kani að nafni  Nate Brown komnir til liðsins.

Snæfell mæti til leiks mjög ákveðið og barðist allt frá fyrstu mínutu, minnugir þess að liðið tapaði seinasta leik á móti Íslandsmeisturunum á Stykkishólmi. Varnarleikur Keflavíkur var ekki upp á marga fiska eins og hefur ekki verið nægilega góður í síðustu leikjum. Í lið Keflavíkur vantaði nokkra leikmenn  Elentínus og Halldór og landsliðsmennina Arnar Freyr og Gunnar Einars. Snæfell fékk mikið af opnum þriggja stiga skotum og var hittnin hjá þeim frábær 16 af 30 eða 53 %. Keflavík hitti að sama skapi hræðilega í þessum leik, 6 af 21 eða 28,6 %. AJ var skárstur í leiknum en fékk 5 villur og bekkurinn í kölfarið 2 tæknivillur!!!

Tölfræði_leiksins.

Við vitnum hér í skrif um leikinn af Snæfels síðunni: ''Leikur kvöldsins bauð upp á allt sem prýðir góðan körfuknattleik. Barátta, 3. stiga skot, blokk, stoðsendingar, troðslur, tæknivillur og brjáluð stemmning á pöllunum. Leikmenn Snæfells komu vel stemmdir til leiks. Varnarleikur liðsins var harður og hitni leikmanna góð, þá sérstaklega fyrir utan 3. stiga línuna. Nate Brown, sem var að spila óaðfinnanlega í kvöld, olli keflvísku vörninni gífurlegum vandræðum og dróg hvað eftir annað 2 og 3 varnarmenn til sín. Þar af leiðandi stóðu félagar hans opnir við 3. stiga línuna eða undir körfunni og settu sín skot niður af öryggi. Varnarlega er ekki hægt að draga einhvern einn til heiðursorðu, því allir leikmenn liðsins spiluðu með hjartanu og börðust blóðugir til leiks loka. Lokatölur leiksins voru 102-87.''

 

Maggi fann ekki fjölina sína og var aðeins  3/11 í þriggja.