Fréttir

Körfubolti | 25. nóvember 2004

Tap gegn Hamri, 86-92

Það virðist erfitt fyrir okkar annars frækna lið að standast leikjaálagið sem fylgir Evrópukeppninni. Nú töpum við gegn einu af botnliðum deildarinnar og fyrir skömmu töpuðum við gegn KR, báðir leikir á útivelli. Þetta er sama sagan og í fyrra, við erum betur mannaðir en þessi félög, en á meðan Evrópukeppnin varir, erum við veikir inn á milli, sérstaklega á útivelli. Krafturinn virðist ekki duga. Vonum samt að við náum að rífa okkur upp fyrir sunnudaginn, því þá er stórleikur og þar leikum við jú yfirleitt af fullri getu, en eins og menn vita er Bikarleikur gegn Snæfelli á sunnudaginn í Sláturhúsinu.

Fátt er um leikinn að segja nema að við vorum arfaslakir ef Kanarnir eru undanskildir. Þeir virðast hafa úthald í þessa erfiðu törn, enda atvinnumenn og geta hvílt sig betur inn á milli. Glover var öflugur og skoraði 40 stig í leiknum. Falur sagði að hann hefði líklega getað bjargað okkur, en því miður þurfti hann að yfirgefa völlinn með fimm villur nokkrum mínútum fyrir leikslok. Nick var með 21 stig, en var búinn með gasið í lok leiksins.

Þeir leikmenn sem hvíla í Evrópukeppninni náðu ekki að sýna sitt besta og hinir voru þreyttir. Afleiðingin var slakur varnarleikur og tap. Nú er staðan okkar í deildinni farin að versna aðeins. Fimm sigrar í átta leikjum, en ef við náðum sjö eða átta sigrum fyrir áramót erum við, þrátt fyrir allt, í ágætum málum í deildinni. Enginn gerir ráð fyrir Deildarmeistaratitli vegna álagsins, en mikilvægt er að vera sem næst toppnum, annað eða þriðja sætið væri mjög gott, það fjórða hugsanlega ásættanlegt.

Tölur úr leiknum koma innan skamms.

Það er verðugt verkefni fyrir þjálfara og leikmenn að athuga hvort við eigum einhver svör við þessum down-leikjum í deildinni. Er þetta óumflýjanlegt vegna álags, eða eigum við kannski lausn á þessu vandamáli? Kemur í ljós ....

En á meðan Evrópukeppnin varir brosum við breitt og setjum markmiðið á að komast upp úr riðlinum, möguleikarnir eru fyrir hendi. Dagskráin er þessi fram að jólum:

  • Sunnud. 28. nóv. Kef - Snæfell (Bikarinn)
  • Fimmtud. 2. des. Kef - Skallagrímur (deildin)
  • Þriðjud. 7. des. Bakken - Kef (Euro)
  • Fimmtud. 9. des. Madeira - Kef (Euro)
  • Sunnud. 12. des 16-liða úrslit í Bikarnum (ef við komumst þangað)
  • Þriðjud. 14. des. Njarðvík - Kef (deildin)
  • Fimmtud. 16. des. Kef - Fjölnir (deildin)

Sex eða sjö leikir á 19 dögum og hugsanlega fimm leikir á níu dögum. . nú reynir á mannskapinn sem aldrei fyrr !!!