Fréttir

Körfubolti | 19. september 2004

Tap gegn Hörsholm í gær og sigur gegn SISU í morgun

Kvennalið Keflavíkur lék í gær sinn erfiðasta leik í ferðinni þegar þær mættu Hörsholm að nýju, nú með fullskipað lið. Þreytumarki voru á Keflavíkurðinu og Hörsholm lék á fullum styrk, en það er sterkasta lið Danmerkur með þrjá bestu leikmenn landsins. Jafnt var eftir fyrsta leikhluta, en munurinn orðinn 14 stig í hálfleik. Í seinni hálfleik slökuðu Keflvíkingar verulega á og Hörsholm gekk á lagið og vann 71-42.

Í morgun var leikið um annað sætið á mótinu og spilaði Keflavík gegn SISU. Stúlkurnar náðu góðri byrjun og leiddu með 14 stigum í hálfleik. Í þeim seinni hægði á okkur, þrátt fyrir að pressuvörn hafi verið beitt mikið. Forystan minnkaði, en Keflavík hafði þó góðan sigur, ekki síst vegna stórleiks Rannveigar, bæði í vörn og sókn. Stig Keflavíkur skoruðu: Rannveig 20, María Ben 14, Reshea 11, Anna María 8, Bryndís 4, Birna 4, Guðrún Harpa 3 og Marín 3. Birna kom þarna við sögu í fyrsta skiptið í ferðinni, en hún kom inná þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum.

Nú er þessari ferð lokið, 4 sigrar og 1 tap. Stúlkurnar ætla í Tívolí í kvöld og svo koma þær heim á morgun. Sverrir Þór þjálfari sagði í spjalli við Heimasíðuna að hann væri mjög ánægður með ferðina. Hún hefði verið ánægjuleg í alla staði og stúlkurnar hefðu staðið sig vel, allar með tölu. Birna og Svava léku nánast ekkert með vegna meiðsla en veittu góðan móralskan stuðnin :)