Tap gegn HTV í Toulon, 107-91
Lið HTV frá Toulon ætlaði sér greinilega ekki að láta Keflvíkinga komast upp með að dúndra niður þristum í Espace 3000 höllinni s.l. fimmtudagskvöld. Sterkir og hávaxnir leikmenn þeirra límdu sig á skyttur okkar og gáfu þeim engin grið, frá fyrstu til síðustu mínútu. Okkar menn þurftu því að hafa meira fyrir skotunum en oft áður og bitnaði það á hittninni, aðeis rötuðu 9 þristar oní úr 28 tilraunum sem er frekar slakt á okkar mælikvarða. Einnig var hittnin úr 2ja stiga skotunum slök, aðeins 22 af 49 oní (45%) á móti 33 af 43 (77%) hjá Frökkunum.
Annars byrjuðu Frakkarnir með látum og komust í 15-4. Þá náðu okkar strákar loks úr sér mesta skrekknum og með Derrick Allen í fararbroddi minnkaði munurinn í 4 stig, 31-27, fyrir lok fyrsta leikhluta. Derrick var svaka öflugur í fyrri hálfleik, setti þá 21 stig og nýtti færin sín vel. Ef honum brást bogalistin, þá hirti hann eigið frákast og settann oní.
Í öðrum leikhluta rokkaði munurinn frá 5 og upp í 15 stig og lauk í átta stigum 55-47. Nick hafði sett niður tvo þrista í röð og Jonni og Sverrir komu sterkir inn í vörnina og orsökuðu vandræði hjá Toulon. Flottustu körfu hálfleiksins átti þó bakvörður Toulon, Jason Rowe, en hann er aðeins rúmir 1,70 m á hæð. Hann stal innkast-sendingu, rauk upp völlinn eins og byssubrandur, stökk upp jafnfætis og hreinlega hamraði boltanum niður í körfuna. Hreint ótrúlegur stökkkraftur í manninum.
Byrjun seinni hálfleiks var afleit hjá okkar mönnum og Toulon byggði upp sinn mesta mun, 70-52, ekki síst vegna klaufaskapar í sóknarleik okkar. Sendingar voru slakar og pressuvörnin gekk ekki upp. Heimamenn fengu mikið af auðveldum körfum nálægt körfunni og svo hittu þeir vel úr 3ja stiga skotum, Frakkinn Legname setti niður nokkrar slíkar, en hann hafði líka skellt niður 8 þristum í fyrsta leiknum.
Segja má að leikurinn hafi tapast á þessum kafla, þó Keflavík náði að minnka muninn aftur niður í 8 stig, ekki síst fyrir tilstilli Magnúsar Gunnarsson sem fann fjölina í seinni hálfleik, setti alls niður fjóra þrista. Ekki náðum við þó að "komast í stuð", til þess vorum við kannski of óþolinmóðir. Þegar um 2 mínútur lifðu leiks, tók Keflavík sénsinn og reyndi að jafna í hvelli, en eins og oft í slíkum tilraunum, þá jókst bara munurinn í staðinn. 16 stiga ósigur leit dagsins ljós, 107-91.
Heilt yfir má segja að Keflavíkurliðið hafi leikið nokkuð vel og baráttan var til fyrirmyndar, frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Samt er þrennt sem þarf að bæta fyrir næsta leik, ef sigur á að vinnast. Í fyrsta lagi fengu Frakkarnir of margar auðveldar körfur úr mjög stuttum færum, í öðru lagi gerðum við of mörg mistök í sókninni og töpuðum boltanum 24 sinnum og í þriðja lagi, þá verðum við að komast í betri 3ja stiga færi og nýta þau . . . . Allt auðvelt, ekki satt :)
Derrick var yfirburðamaður í okkar liði, 29 stig og 11 fráköst, hitti úr 55% skota sinna og setti 7 af 8 vítum oní. Hann lék allan leikinn. Magnús átti mjög góðan leik, sérstaklega í seinni hálfleik, en það tók hann tíma að átta sig á aðstæðum og stífri vörninni. Magnús skoraði 17 stig í leiknum, hitti úr 4 af 9 3ja og átti 6 stoðsendingar. Jón Hafsteins átti frábæra innkomu, líklega sinn besta leik í vetur, reif niður fráköst, varði skot og var út um allt. Sverrir og Davíð komu báðir sterkir inn, Sverrir skoraði 6 stig, en Davíð hefði alveg mátt reyna meira í sókninni. Gunnar og Falur voru ágætir í vörninni og Falur stjórnaði liðinnu lengst af. En þeir náðu sér ekki á strik í sóknarleiknum og skoruðu aðeins 7 stig hvor og hittu samtals úr 4 af 17 skotum sem er langt undir þeirra getu. Nick hitti vel úr þristum, 3 af 6, en var annars mistækur, setti aðeins 2 skot af 9 2ja stiga og 2 af 6 vítum, og tapaði boltanum 5 sinnum, þar af 3svar vegna skrefadóma. Halldór átti afar skemmtilega innkomu og leík vel þær 8 mín sem hann fékk, fékk 3 villur, hirti 2 fráköst og hitti úr eina skotinu sem hann tók, en það var þristur sem hann smellti í með stóran Frakka fljúgandi í átt að sér. Gunnar Stef var 10. maðurinn í liðinu en hann kom ekki inná.
Frakkarnir hafa yfirburði líkamlega, þó Keflavík hafi hirt fleiri fráköst. Allir í byrjunarliðinu voru yfir 2m, nema bakvörðurinn knái sem reyndar meiddist seint í fyrri hálfleik og kom ekkert við sögu í þeim seinni. Legname, Asceric og Bouteille eru allir góðar skyttur og mega engan frið fá.
Ljóst er að Keflavíkurliðsins bíður skemmtilegt verkefni á heimavelli, en það er mat þess sem þetta ritar að ef við náum toppleik í góðri stemmingu munum við sigra þetta atvinnumannalið á heimavelli . . .
Myndir eru væntanlegar.
Hér má sjá tölur úr leiknum (þó eru þær ekki alveg réttar, t.d. setti Legname niður amk. 4 þrista í leiknum!).